Mikligarður og endalok samvinnuverslunar í Reykjavík

Kaupfélagsverslun var lengi vel ráðandi verslunarform á landsbyggðinni en annað var raunin á höfuðborgarsvæðinu. Þar var KRON höfuðvígi kaupfélagsverslunar sem þrátt fyrir stærð sína náði aldrei ráðandi stöðu á markaði. Í ört vaxandi samkeppni og erfiðara samkeppnisumhverfi undir lok áttunda áratuga...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Baldvin Már Baldvinsson 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2025
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/1946/49447
Description
Summary:Kaupfélagsverslun var lengi vel ráðandi verslunarform á landsbyggðinni en annað var raunin á höfuðborgarsvæðinu. Þar var KRON höfuðvígi kaupfélagsverslunar sem þrátt fyrir stærð sína náði aldrei ráðandi stöðu á markaði. Í ört vaxandi samkeppni og erfiðara samkeppnisumhverfi undir lok áttunda áratugarins ákvað Samband íslenskra sveitafélaga, SÍS, í samráði við KRON og önnur kaupfélög á höfuðborgarsvæðinu að blása til sóknar og reyna að auka hlut sinn á ört stækkandi markaði. KRON var örlagavaldur í ferlinu og áttu þessi félög eftir að stofna og reka verslunina Miklagarð sem breytti matvöruverslun á höfuðborgarsvæðinu og alls landsins til frambúðar. Engar rannsóknir hafa verið gerðar á þessum áætlunum SÍS og KRON eða hvernig fór fyrir samvinnuverslun á höfuðborgarsvæðinu. Þessari ritgerð er ætlað að gefa skýra mynd á stórbrotnum áformum forsvarsmanna samvinnuhreyfingarinnar um aukna markaðsstöðu á höfuðborgarsvæðinu og hvernig fór fyrir þeim. Niðurstaðan var endalok samvinnuverslunar í Reykjavík.