Summary: | Bakgrunnur: Fjölskyldur einstaklinga með geðrænan vanda upplifa oft álag sem hefur áhrif á virkni þeirra og getu til að styðja við bataferli. Fjölskyldumiðuð hjúkrun byggð á Calgary-fjölskyldulíkönunum (CFAM og CFIM) hefur verið þróuð til að efla stuðning og bæta samskipti innan fjölskyldna í geð-hjúkrun. Til að mæla upplifun fjölskyldumeðlima af stuðningi hjúkrunarfræðinga var þróað mælitækið Iceland Family Perceived Support Questionnaire (ICE-FPSQ), sem mælir hugrænan og tilfinninga¬legan stuðning við fjölskyldumeðlimi. Tilgangur: Markmið þessarar kerfisbundnu fræðilegu samantektar er að greina hvernig ICE-FPSQ hefur verið notað í rannsóknum innan geðhjúkrunar og hvernig niðurstöður þeirra hafa verið hagnýttar í klínísku starfi. Sérstök áhersla er lögð á próffræðileg einkenni listans og gagnsemi í klínískri vinnu geðhjúkrunarfræðinga. Aðferðir: Gerð var kerfisbundin samantekt með leit í gagnasöfnum á borð við PubMed, Scopus, CINAHL og Google Scholar. Notuð voru PICOT-viðmið og MeSH-leitarorð við mótun rannsóknar-spurningar og leitarferlis. Rannsóknir sem notuðu ICE-FPSQ í geðhjúkrun voru teknar til greina og metnar með gæðaviðmiðum JBI. Niðurstöður: Rannsóknir sýna að ICE-FPSQ hefur háan áreiðanleika og hátt innra réttmæti. Mæl¬itækið er næmt fyrir breytingum eftir fjölskyldumiðaðar íhlutanir og hefur reynst gagnlegt í að greina hugrænan og tilfinningalegan stuðning. Íhlutanir sem byggja á CFIM, svo sem meðferðarsamræður, hafa aukið upplifaðan stuðning fjölskyldumeðlima, bætt líðan og styrkt tengsl innan fjölskyldna. Ályktanir: ICE-FPSQ er öflugt mælitæki í fjölskyldumiðaðri geðhjúkrun og getur nýst bæði í rann-sóknum og klínísku starfi til að meta árangur íhlutana og styðja við fjölskyldur einstaklinga með geð-raskanir. Samantektin undirstrikar mikilvægi þess að innleiða markvissar, fjölskyldumiðaðar nálganir með mælanlegum árangri til að efla gæði geðheilbrigðisþjónustu.
|