Innkaup sveitarfélaga. Tilviksrannsókn á innkaupastýringu sveitarfélaga.
Viðfangsefni þessarar ritgerðar var að skoða innkaup sveitarfélaga á Íslandi. Markmiðið með henni var aðallega að skoða hvernig innkaupastýringu væri háttað í sveitarfélögum. Horft er þá sérstaklega til hversu virk innkaupastýring er til staðar og hvort að hún leiði til hagkvæmni í rekstri. Skoðað v...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Master Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2025
|
Subjects: | |
Online Access: | https://hdl.handle.net/1946/49393 |
Summary: | Viðfangsefni þessarar ritgerðar var að skoða innkaup sveitarfélaga á Íslandi. Markmiðið með henni var aðallega að skoða hvernig innkaupastýringu væri háttað í sveitarfélögum. Horft er þá sérstaklega til hversu virk innkaupastýring er til staðar og hvort að hún leiði til hagkvæmni í rekstri. Skoðað var sérstaklega hvort stöðugildi innkaupaðila væri til staðar og þá hvort munur væri á innkaupastýringu sveitarfélagsins ef staðan væri. Rammasamningar voru skoðaðir sem stjórntæki hins opinbera og nýting þeirra skoðuð nánar meðal sveitarfélaga. Þær fræðilegu kenningar sem voru til grundvallar í ritgerðinni eru um opinbera stefnumótun, nýskipan í opinberum rekstri og samninga sem stjórntækis. Aðferðafræði rannsóknarinnar var blönduð leið en bæði var lögð fyrir spurningakönnun til allra sveitarfélaga ásamt því að tekin voru viðtöl við starfsmenn fjögurra sveitarfélaga í framhaldinu til að fá nánari innsýn í viðfangsefnið. Gögn voru greind og borin saman við þær fræðilegu kenningar sem lágu að baki ritgerðinni. Niðurstöður leiða í ljós að mikill munur er á milli sveitarfélaga hversu mikil stýring á sér stað á innkaupum. Hjá viðmælendum kom í ljós að ánægja er með þá vegferð að leggja áherslu á innkaupamál og eru fleiri sveitarfélög farin að horfa til þess þáttar rekstursins til að ná fram aukinni skilvirkni og hagkvæmni. Þá var einnig niðurstaða að rammasamningar eru nýttir í talsverðum mæli af sveitarfélögum og er nokkur ánægja meðal svarenda með þá samninga. Einnig koma fram að óánægju er að gæta meðal viðmælenda vegna breytinga sem nýverið voru gerðar á umsýslu með rammasamningum. The subject of this theses was to examine the procurement practices of municipalities in Iceland. The primary goal was to explore how procurement managament is organized in municipalities. Specifically, the focus was on how active procurement management is in place and wheather it leads to efficiency in operations. The study particularly looked at whether municipalities had designated procurement officers and whether the procurement ... |
---|