Börn sem beita börn ofbeldi. Tíðni ofbeldis meðal barna á Íslandi og aðferðir til þess að bregðast við breytingum
Ofbeldi meðal barna er vandamál víðsvegar um heiminn og getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Í þessari ritgerð er fjallað um börn sem verða fyrir ofbeldi af hendi annarra barna og þau börn sem beita slíku ofbeldi, hvort sem það er í skóla, á leikvöllum eða öðrum félagslegum aðstæðum. Úsk...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Bachelor Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2025
|
Subjects: | |
Online Access: | https://hdl.handle.net/1946/49312 |
Summary: | Ofbeldi meðal barna er vandamál víðsvegar um heiminn og getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Í þessari ritgerð er fjallað um börn sem verða fyrir ofbeldi af hendi annarra barna og þau börn sem beita slíku ofbeldi, hvort sem það er í skóla, á leikvöllum eða öðrum félagslegum aðstæðum. Úskýrðar verða skilgreiningar og algengustu birtingarmyndum ofbeldis meðal barna og skoðaðar fræðilegar kenningar sem útskýra hvaða einstaklings- og félagslegir þættir geta haft áhrif á slíkt ofbeldi. Markmið ritgerðarinnar er að rannsaka tíðni ofbeldis meðal barna á Íslandi og skoða hvernig samfélagið bregðst við þessum alvarlega vanda. Með því að greina úrræði og aðgerðir sem nú þegar eru í gangi, bæði hérlendis og erlendis, verður leitast við að varpa ljósi á styrkleika og veikleika núverandi kerfis. Einnig verða skoðaðar forvarnir og hvernig þær hafa áhrif á tíðni ofbeldis og hvernig þær stuðla að heilbrigðari samskiptum innan fjölskyldna og samfélagsins almennt. |
---|