Réttarstaða erlendra afplánunarfanga á Íslandi

Í ritgerðinni er leitast við að lýsa réttarstöðu erlendra afplánunarfanga á Íslandi. Lýst er þeirri rannsóknarvinnu sem höfundur vann af hendi við úrvinnslu ritgerðarinnar auk þess sem farið er yfir þær réttarheimildir sem um réttarsviðið gilda. Fjallað er um álitaefni sem koma við sögu frá því að d...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristrún Elsa Harðardóttir 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/4920
Description
Summary:Í ritgerðinni er leitast við að lýsa réttarstöðu erlendra afplánunarfanga á Íslandi. Lýst er þeirri rannsóknarvinnu sem höfundur vann af hendi við úrvinnslu ritgerðarinnar auk þess sem farið er yfir þær réttarheimildir sem um réttarsviðið gilda. Fjallað er um álitaefni sem koma við sögu frá því að dómur fellur og þar til dómþoli er vistaður í fangelsi. Lúta þau einna helst að forgangsröðun dómþola á boðunarlista í afplánun og ákvörðun um það í hvaða fangelsi vista skuli dómþola. Einnig er fjallað um réttindi og skyldur fanga í afplánun með áherslu á það sem snýr sérstaklega að erlendum föngum. Þar ber helst að nefna upplýsingagjöf við innkomu í fangelsi, vistun fanga í hús og klefa, samskiptaörðugleika sem erlendir fangar glíma við, þjónustu þá sem býðst föngum í afplánun, beitingu og fullnustu agaviðurlaga, veitingu leyfa frá afplánun og möguleika fanga á reynslulausn. Að lokum er farið yfir þær heimildir sem íslenska ríkið hefur að lögum til þess að senda erlenda fanga til afplánunar í heimaríki sem og möguleika fanganna sjálfra til að sækja um flutning.