Summary: | Verkefni þetta er hagnýtt lokaverkefni í Byggingariðnfræði við Háskólann í Reykjavík. Verkefnið er unnið á haustönn 2024 og leiðbeinendur voru Eyþór Rafn Þórhallsson, dósent og Helgi G. Bragason, byggingafræðingur. Verkefni þetta var unnið af Hrafnkeli Jónssyni og Magnúsi Sveini Ingimundarsyni. Verkefnið fólst í því að hanna einbýlishús á tveimur hæðum, með innbyggðri bílageymslu og grunflöt um 150 m². 2 íbúðir voru heimilaðar í húsinu. Neðri hæð húsins skal vera steypt og einangruð að utan en sú efri byggð úr timbri og einangruð milli stoða. Efri hæð skal vera klædd loftræstri klæðningu og þak loftað sperruþak. Við efnisval skal velja efni sem er viðhaldslítið til a.m.k. 35 ára. Við val á kerfi til upphitunar er gerð krafa til skjótrar svörunar til hækkunar og lækkunar á hita í rýmum. Ofnakerfi og gólfhitakerfi skal bæði vera í húsinu í húsið þó aðeins annað hvort kerfið sé í hverju rými. Við hönnun húsins skal fara eftir lögum um mannvirki nr. 160/2010 sem tóku gildi 1. Janúar 2011, byggingarreglugerð nr. 112/2012 sem tók gildi í maí 2016 ásamt síðari breytingum og leiðbeiningum sem finna má á heimasíðu Mannvirkjastofnunar. Allir báðir meðlimir hópsins komu fram með hugmyndir af húsum og breytingartillögum á þeim. Að ending var það hús að Sæbólsbraut 34 sem varð fyrir valinu. Ýmsar breytingar voru gerðar, bæði á húsi og lóð.
|