Summary: | Verkefnið er lokaverkefni þar sem tekin er fyrir hönnunartillaga Kollgátu á nýbyggingu á stúdentagörðum fyrir FÉSTA, Félagsstofnun stúdenta á Akureyri. Tillagan tók þátt í hönnunarsamkeppni sem var haldin árið 2023, og endaði í 3ja sæti. Byggingin sem um ræðir er 4792m2 fimm hæða staðsteypt hús sem á að hýsa 70 einstaklingsíbúðir fyrir stúdenta auk aðstöðu FÉSTA og Stúdentateríu á jarðhæð. Í kjallara hússins er bílgeymsla, hjólageymsla og geymslur íbúa auk tæknirýma. Verkefnið fól í sér að halda áfram með hönnunartillögu og fullhanna bygginguna. Skýrsla og viðaukar fylgja lokaverkefni og er þar að finna frumhönnunargögn, forhönnunargögn, aðaluppdrætti, verkteikningar og útboðsgögn.
|