"Maður ætti ekki að þurfa að leita sér að hjálparhendinni sjálfur heldur mætti manni vera rétt hún.". Reynsla aðstandenda af stuðningi sem er í boði á Íslandi fyrir þá sem hafa misst ástvin í sjálfsvígi

Ritgerð þessi er til MA gráðu til starfsréttinda í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Meginviðfangsefni rannsóknarinnar var reynsla aðstandenda af stuðningi sem er í boði á Íslandi fyrir þá sem hafa misst ástvin í sjálfsvígi. Rannsóknin var eigindleg og tekin voru átta viðtöl við einstaklinga sem hö...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigrún Harpa Sigurðardóttir 1998-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/1946/48742
Description
Summary:Ritgerð þessi er til MA gráðu til starfsréttinda í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Meginviðfangsefni rannsóknarinnar var reynsla aðstandenda af stuðningi sem er í boði á Íslandi fyrir þá sem hafa misst ástvin í sjálfsvígi. Rannsóknin var eigindleg og tekin voru átta viðtöl við einstaklinga sem höfðu annað hvort misst foreldri, systkini, barn eða maka í sjálfsvígi. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að skortur er á stuðningi við eftirlifendur sjálfsvíga á Íslandi. Ennfremur kom fram að viðmælendum fannst vanta upp á eftirfylgni í kjölfar sjálfsvígs ástvinar. Einnig fannst viðmælendum lítið sem greip þau eftir að þau misstu ástvin sinn í sjálfsvígi og greindu flestir frá því að þau myndu vilja að það væri teymi eða net sem myndi veita stuðning til eftirlifenda sjálfsvíga. Næstum öll þjónusta sem viðmælendur nýttu sér í kjölfar sjálfsvígsins var sótt af þeirra eigin frumkvæði. Niðurstöður leiddu þó í ljós að viðmælendur voru að mestu leyti ánægðir með þann stuðning sem þau fengu og var hann mjög mikilvægur í þeirra sorgarferli. Það kom einnig í ljós að ýmsir þættir móta reynslu aðstandenda af stuðningi. Búseta var þáttur sem virtist skipta miklu máli þegar kom að framboði af stuðningi, en samkvæmt niðurstöðum voru mun fjölbreyttari stuðningsúrræði í boði á höfuðborgarsvæðinu en utan þess. Einnig skipti máli hvenær einstaklingar misstu ástvin en þeir sem misstu fyrir meira en tíu árum greindu frá litlum stuðningi í samfélaginu miðað við þá sem misstu síðar. Ekki hafa margar rannsóknir verið gerðar á Íslandi um reynslu aðstandenda af stuðningi í kjölfar sjálfsvígs og langaði höfundi að varpa ljósi á þetta málefni. Vonandi mun þessi rannsókn verða til þess að stuðningur við eftirlifendur sjálfsvíga verði betrumbættur og þessi hópur fái meiri athygli í rannsóknarsamfélaginu. Lykilorð: Sjálfsvíg, stuðningur í kjölfar sjálfsvígs, eftirlifendur This thesis is a final assignment for a MA degree in clinical social work at the University of Iceland. The main objective of this thesis was to investigate the ...