Summary: | Þessi rannsókn fjallar um samkenndarþreytu og samkenndarsátt meðal félagsráðgjafa á Íslandi. Samkenndarþreyta felur í sér tilfinningalega og líkamlega þreytu sem stafar af því að hlusta á erfiða reynslu skjólstæðinga, á meðan samkenndarsátt lýtur að jákvæðri upplifun af því að veita aðstoð og sjá árangur vinnu sinnar. Í rannsókninni var notast við mælitækið Professional Quality of Life Scale (ProQol) til að meta þessi fyrirbæri og greina þá þætti sem hafa áhrif á þau, svo sem vinnuumhverfi, starfsreynslu og stuðningskerfi. Niðurstöðurnar sýna að meiri starfsreynsla tengist aukinni samkenndarsátt og minni samkenndarþreytu. Á hinn bóginn eru félagsráðgjafar sem starfa við álagsmikla málaflokka, svo sem barnavernd, líklegri til að upplifa hærri stig samkenndarþreytu. Stuðningsrík vinnuumhverfi, sem einkennast af góðri forystu og sterkum tengslum við samstarfsfólk, dregur verulega úr streitu og styður við vellíðan starfsmanna. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi sjálfsumönnunar og stofnanalegs stuðnings við að byggja upp seiglu meðal starfsmanna. Þessi rannsókn bætir við takmarkaða þekkingu á Íslandi á þessu sviði og veitir hagnýtar upplýsingar fyrir stefnumótun og skipulag vinnustaða. Með því að takast á við rót vandans sem veldur samkenndarþreytu og efla verndandi þætti er hægt að tryggja betri líðan og árangur félagsráðgjafa og skjólstæðinga þeirra. Niðurstöðurnar eru mikilvægt innlegg í áframhaldandi umræðu og aðgerðir varðandi sjálfbærni í starfi félagsráðgjafa og skyldra starfsgreina. Lykilorð: Félagsráðgjöf, samkenndarsátt, samkenndarþreyta, ProQol, vinnuumhverfi This study examines compassion fatigue and compassion satisfaction among social workers in Iceland. Compassion fatigue encompasses emotional and physical exhaustion arising from exposure to clients‘ traumatic experiences, while compassion satisfaction pertains to the positive feelings derived from helping others. Utilizing the Professional Quality of Life Scale (ProQol) as the primary measurement tool, the research identifies key factors influencing ...
|