Samræmi skráninga barnaverndarstarfsfólks á tilkynningum sem berast barnaverndarþjónustum samkvæmt SOF kerfinu

Samræmi skráninga og vinnubragða í málavinnslu barnaverndarþjónusta grundvallast í góðum leiðbeiningum á verklagi. Þar gegna vandaðar og ítarlegar skráningar lykilhlutverki til að ábyrgjast samfellda, samþætta og áreiðanlega þjónustu. Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að fá mynd af samræmi skránin...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingunn Lára Magnúsdóttir 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/1946/48736
Description
Summary:Samræmi skráninga og vinnubragða í málavinnslu barnaverndarþjónusta grundvallast í góðum leiðbeiningum á verklagi. Þar gegna vandaðar og ítarlegar skráningar lykilhlutverki til að ábyrgjast samfellda, samþætta og áreiðanlega þjónustu. Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að fá mynd af samræmi skráninga starfsfólks á tilkynningum sem berast barnaverndarþjónustum, samkvæmt SOF kerfinu. Einnig að rýna í leiðbeiningar útgefnar af Barna- og fjölskyldustofu til að leggja mat á hver þörf er fyrir uppfærslu þeirra. Tilgangur rannsóknarinnar er að auka skilning á mikilvægi samræmdra skráninga og hvaða afleiðingar það getur haft séu þær misjafnar og ófullnægjandi. Gagna var aflað með spurningalista sem innihélt fjórar tilbúnar smásögur um tilkynningar á aðstæðum barna sem svarað var af starfsfólki barnaverndarþjónusta, þar sem það var beðið um að skrá lýsingar á atvikum samkvæmt SOF kerfinu. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að misjafnt er hvernig tilkynningar um misbrest í uppeldi barna eru skráðar samkvæmt SOF kerfinu og að þörf sé á uppfærslu á leiðbeiningum. Það gefur vísbendingar um að tölfræðilegar upplýsingar um fjölda mála og tegundir þeirra séu ekki nægilega traustar og endurspegli því ekki raunverulega þörf fyrir úrræði eða notkun þeirra. Lykilorð: Skráningar, SOF kerfið, réttindi barna, misbrestur í uppeldi barna, ofbeldi, vanræksla Consistency in record-keeping and practices in child protection services relies on clear and comprehensive procedural guidelines. Accurate and detailed documentation plays a crucial role in ensuring seamless, integrated, and reliable service delivery. The primary objective of this study is to assess the consistency of records for reports submitted to child protection services in Iceland, as recorded in the SOF system. Additionally, the study examines the guidelines issued by the Child and Family Agency to evaluate the need for their revision. The purpose of the research is to enhance understanding of the importance of standardized documentation and the potential ...