Upplýsingaóreiða um matvæli og næringu á netinu og mikilvægi matvælavísindavefs

Þessi meistararitgerð fjallar um stöðu næringarupplýsinga á Íslandi með áherslu á algengi og umfang rangra upplýsinga um mat og næringu á netinu ásamt því að meta þörf fyrir íslenskan matvælavísindavef. Með eigindlegri nálgun felst rannsóknin í skipulögðum viðtölum við fjóra hópa: næringarfræðinga s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðrún Nanna Egilsdóttir 1994-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/1946/48627
Description
Summary:Þessi meistararitgerð fjallar um stöðu næringarupplýsinga á Íslandi með áherslu á algengi og umfang rangra upplýsinga um mat og næringu á netinu ásamt því að meta þörf fyrir íslenskan matvælavísindavef. Með eigindlegri nálgun felst rannsóknin í skipulögðum viðtölum við fjóra hópa: næringarfræðinga sem eru virkir á samfélagsmiðlum, kennara frá Háskóla Íslands, framhaldsskólakennara og grunnskólakennara. Niðurstöðurnar sýna samhljóm meðal þátttakenda um áskoranir sem stafa af rangfærslum á samfélagsmiðlum, sem skerðir skilning almennings á mat og næringu og getur stuðlað að óæskilegri matarhegðun. Næringarfræðingar og háskólakennarar, með sína sérhæfðu þekkingu meta þetta sem viðfangsmikið vandamál vegna mikils magns óreiðukenndra og rangra upplýsinga um næringu á netinu. Þeir hvetja til þróunar vísindalegs matvælavefs til að veita traustar og gagnreyndar upplýsingar til almennings. Kennarar í framhalds- og grunnskólum sjá að nemendur eiga í erfiðleikum með að greina traustar upplýsingar og kalla eftir hagnýtum fræðslutólum til að hjálpa nemendum að greina rétt frá röngu í yfirgnæfandi fjölda næringarupplýsinga á netinu. Þeir leggja áherslu á þörf fyrir notendavænan vettvang sem eflir gagnrýna hugsun og eykur næringarlæsi. Rannsóknin undirstrikar brýna þörf fyrir traust úrræði til að vinna gegn neikvæðum áhrifum rangra upplýsinga um mat og næringu á netinu á matarhegðun landsmanna. This master’s thesis explores the state of nutrition information in Iceland, focusing on the prevalence of misconceptions about food and nutrition, the extent of online misinformation, and the potential need for an Icelandic food science website. Employing a qualitative approach, the study involves structured interviews with four groups: dietitians active on social media, teachers from the University of Iceland, high school teachers, and primary school teachers. The findings reveal a consensus among participants regarding the significant challenges posed by misinformation on social media, which impairs public understanding of ...