Summary: | Þann 10. nóvember 2023 stóðu íbúar Grindavíkur frammi fyrir óvenjulegri áskorun þegar þeim var skipað að yfirgefa heimili sín vegna yfirvofandi eldgosahættu. Þessi atburður hefur reynst Grindvíkingum mikil áskorun og varpar ljósi á mikilvægi skilvirkrar krísustjórnunar í landinu. Aðstæður í Grindavík árið 2023 voru einstakar vegna þess hversu hratt ástandið þróaðist. Íbúar þurftu að yfirgefa heimili sín með litlum fyrirvara og mörg atriði þurfti að hafa í huga, svo sem tryggingu á öruggum flutningi, varðveislu nauðsynlegra eigna og aðgengi að upplýsingum um ástandið. Markmið rannsóknarinnar var að leita svara við eftirfarandi spurningu: - Hver var upplifun Grindvíkinga af fyrstu rýmingunni í eldgosakrísunni 2023 og hvaða lærdóm má draga af viðbrögðum þeirra og reynslu fyrir krísustjórnun í framtíðinni? Að greina hvernig íbúar upplifðu þetta áfall og hvernig þeir brugðust við er ekki aðeins mikilvægt til að skilja mannlega hegðun í neyð heldur einnig til að þróa betri krísuáætlanir sem taka mið af raunverulegum þörfum og viðbrögðum fólks. Viðbrögð við náttúruhamförum eru hins vegar aðstæðubundin og oft þarf að taka ákvarðanir á stuttum tíma með takmarkaðar upplýsingar. Í slíku umhverfi er auðvelt að vera vitur eftir á, þegar meiri tími og yfirsýn er fyrir hendi. Rannsakandi notaði bæði megindlegar og eigindlegar rannsóknaraðferðir. Netkönnun var send út til íbúa Grindavíkur en hún innihélt bæði lokaðar og opnar spurningar um útfærslu rýmingarinnar og persónulegar upplifanir. Auk þess voru djúpviðtöl tekin til að fá betri innsýn í tilfinningaleg viðbrögð þátttakenda. Með þessum aðferðum var hægt að fá heildstæðari mynd af bæði almennu mynstri og persónulegri reynslu. Niðurstöðurnar sýna að rýmingin gekk að mestu leyti vel fyrir sig, en þær undirstrika mikilvægi stöðugra og skýrra upplýsinga í krísustjórnun, þar sem sumir íbúar upplifðu upplýsingaóreiðu. Einnig kom í ljós að áhættuskynjun íbúa var mótuð af fjölmörgum þáttum sem höfðu áhrif á ákvarðanatökuferli þeirra. On November 10th 2023, the residents of ...
|