Viðskiptatækifæri á norðurslóðum. Ísland og Grænland. Tækifæri og áskoranir

Norðurslóðir spila æ stærra hlutverk og hafa meira vægi en áður vegna loftslagsbreytinga af mannavöldum og hlýnun jarðar samfara þeim. Þessu fylgja ýmis tækifæri sem og áskoranir. Bráðnun íss á norðurslóðum þýðir opnun siglingaleiða og þar sem skip munu geta siglt á milli heimsálfa þýðir það styttri...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Svava Jónsdóttir 1969-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/1946/48498
Description
Summary:Norðurslóðir spila æ stærra hlutverk og hafa meira vægi en áður vegna loftslagsbreytinga af mannavöldum og hlýnun jarðar samfara þeim. Þessu fylgja ýmis tækifæri sem og áskoranir. Bráðnun íss á norðurslóðum þýðir opnun siglingaleiða og þar sem skip munu geta siglt á milli heimsálfa þýðir það styttri siglingatíma og ódýrari ferðir. Auðlindir eru miklar á norðurslóðum og vilja fjarlæg ríki í sumum tilfellum nýta sér þær. Þar má nefna olíu, gas, nýtanleg jarðefni og málma. Þá munu fiskistofnar færast norður á bóginn vegna hlýnunar hafsins. Áskoranir eru líka margar og má þar nefna mengun sem getur fylgt auknum siglingum og námuvinnslu, áhyggjur eru af aðgangi án eftirlits á svæðinu auk þess sem huga þarf að öryggismálum skipa sem sigla á hafinu á norðurslóðum þar sem langt er til lands. Þá eru veður oft slæm og skip almennt ekki búin fyrir íssiglingar. Í ritgerðinni er lögð áhersla á viðskiptatækifæri á Íslandi og Grænlandi. Ísland þykir vera vel staðsett meðal annars þegar kemur að umskipunarhöfn og er gert ráð fyrir að byggja slíka höfn í Finnafirði. Þá eru í landinu góðir innviðir þótt þá megi bæta. Tækifæri Íslendinga á Grænlandi hafa verið og munu áfram verða mikil svo sem þegar kemur að innviðauppbyggingu en þar hafa verkfræðistofur unnið ýmis verkefni. Vorið 2024 voru sett ný lög á Grænlandi þar sem er ákvæði um 100% innlent eignarhald þegar kemur að sjávarútvegi og mun það hafa áhrif á fjárfestingar Íslendinga hvað hann varðar. Tækifærin eru almennt mikil fyrir Grænlendinga, enda má líkja Grænlandi við gullkistu þegar kemur að auðlindum í landinu, en margt kemur í veg fyrir nýtingu þeirra. Víða skortir innviði í landinu og það sem gerir uppbyggingu þeirra erfiða er meðal annars fámenni, miklar fjarlægðir, ískuldi og svo sífreri. Hér er um að ræða eigindlega tilviksrannsókn (e. case studies) sem byggist meðal annars á skýrslum, fræðigreinum og bókum um málefnið. Þær kenningar sem horft var til eru kenningar um landfræðilegt mikilvægi, víxlhæði og frjálslyndisstefna.