Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn: Sviðsetning samfélags í starfi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík

Í þessari ritgerð er miðað að því að rannsaka hvernig ungir sjálfstæðismenn í Reykjavík nota sviðsetningu til að búa til samsömun með Sjálfstæðisflokknum. Greindir eru þrír performansar á vegum Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík veturinn 2023 – 2024 en þeir eru Instagramsíða félag...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elínborg Una Einarsdóttir 2001-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/48154
Description
Summary:Í þessari ritgerð er miðað að því að rannsaka hvernig ungir sjálfstæðismenn í Reykjavík nota sviðsetningu til að búa til samsömun með Sjálfstæðisflokknum. Greindir eru þrír performansar á vegum Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík veturinn 2023 – 2024 en þeir eru Instagramsíða félagsins, Stjórnamálaskóli Heimdallar og Útför Reykjavíkur sem var pólitískur gjörningur í Tjarnarbíói. Performansarnir eru settir í samhengi við og greindir annarsvegar út frá hugmyndum Erving Goffman um sviðsetningu sjálfsins og hvernig greina megi tilveruna sem leikhús, og hins vegar marxískum kenningum Louis Alhusser um hugmyndafræðileg stjórntæki ríkisins og meitlun. Í fyrsta kafla er fjallað um Heimdall og saga félagsins rakin. Síðan er gerð grein fyrir þeim fræðum sem stuðst er við í ritgerðinni og í kjölfarið eru performansarnir þrír loks greindir út frá þeim. Í greiningunni styðst ég við skrásetningar af performönsunum á netinu sem og eigin upplifanir af stjórnmálaskólanum og Útför Reykjavíkur. Í lokakaflanum eru sameiginleg einkenni performansana dregin saman og þýðingu þeirra í víðara samhengi velt upp. Megin niðurstöður greiningarinnar eru að í starfi sínu sviðsetja ungir sjálfstæðismenn í Reykjavík aðlaðandi hugmynd um spennandi og aðgengilegt samfélg sem auðvelt er að samsama sig með. Það er meðal annars gert í gegnum aðgengilegan húmor sem gjarnan er á kostnað annara flokka, efnisleg þægindi, og með því að láta pólitík falla í skuggann af góðri stemmningu. Með því að skapa þennan vettvang til samsömunar með Sjálfstæðisflokknum í gegnum starfsemina stuðlar Heimdallur að áframhaldandi stöðu flokksins innan íslensks samfélags.