Notkun stafrænna ljósmynda við mat á slitgigt í höndum

Markmið þessarar rannsóknar var að þróa aðferð við að greina handarslitgigt af hágæða ljósmyndum og bera hana saman við klíníska skoðun og röntgengreiningu við mat á handarslitgigt í eldra fólki. Jafnframt var ætlunin að skoða tengsl sársauka í höndum við þessar þrjár greiningaraðferðir. Efni og aðf...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðrún Pálína Helgadóttir 1980-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/4794
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar var að þróa aðferð við að greina handarslitgigt af hágæða ljósmyndum og bera hana saman við klíníska skoðun og röntgengreiningu við mat á handarslitgigt í eldra fólki. Jafnframt var ætlunin að skoða tengsl sársauka í höndum við þessar þrjár greiningaraðferðir. Efni og aðferðir. Þátttakendur voru 381, 160 karlar og 221 konur á aldrinum 69-92, sem valdir voru af handahófi úr AGES-Reykjavík rannsókninni. Teknar voru hágæða ljósmyndir af höndum allra þátttakenda og aðferð þróuð til að meta sjáanleg merki handarslitgigtar af ljósmyndunum. Einnig voru teknar röntgenmyndir af höndum allra þátttakenda og klínísk skoðun framkvæmd. Lagt var mat á upplifun sársauka með spurningalista. Niðurstöður. Samkvæmt ljósmyndaaðferðinni höfðu 60,4% karla og 66,2% kvenna slitgigt í a.m.k. einum handarlið. 85,5% karla og 93,7% kvenna greindust með handarslitgigt skv. röntgen og klínísk skoðun greindi 74,2% karla og 82,4% kvenna með handarslitgigt. Konur reyndust líklegri til að kvarta yfir verkjum og sársauka í handarliðum, en 20% þátttakenda (10,7% karla og 27,0% kvenna) sögðust einhvern tímann hafa fundið fyrir verkjum í að minnsta kosti mánuð og 10,1% karla og 41,4% kvenna fundu stundum fyrir sársauka í höndum. Verkir frá einstaka liðum reyndist tengjast alvarleika slitgigtar samkvæmt öllum þremur greiningaraðferðunum. Ályktanir. Handarslitgigt er algeng hjá öldruðum og í þessum aldurshóp er samræmi milli aðferðanna betra hjá konum heldur en körlum. Röntgen er næmari aðferð við greiningu handarslitgigtar heldur en ljósmyndaaðferðin og klínísk skoðun en í meirihluta tilfella eru þessar aðferðir sammála um greiningu einstaklingana með alvarlega slitgigt. Í þessum aldurshóp kvarta færri karlar en konur yfir sársauka frá handarliðum en samband er milli verkja frá einstökum liðum og alvarleika slitgigtar þegar allar þrjár greiningaraðferðirnar eru notaðar. Objective. The aim of this study was to develop a standardised grading system for the diagnosis of hand osteoarthritis from high duality hand photographs ...