Air pollution and insomnia : the relationship between particulate matter and insomnia, a longitudinal study based in Iceland.

Svifryk (Particulate matter, PM) er vel þekkt umhverfisvandamál sem er stór og útbreidd ógn við bæði líkamlega og andlega heilsu fólks um heim allan. Nýjar vísbendingar hafa komið fram um samband milli loftmengunar og svefnleysis, en hingað til hafa ekki verið gerðar rannsóknir á því sambandi á Ísl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þuríður Elva Eggertsdóttir 1994-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Bachelor Thesis
Language:English
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/47917
Description
Summary:Svifryk (Particulate matter, PM) er vel þekkt umhverfisvandamál sem er stór og útbreidd ógn við bæði líkamlega og andlega heilsu fólks um heim allan. Nýjar vísbendingar hafa komið fram um samband milli loftmengunar og svefnleysis, en hingað til hafa ekki verið gerðar rannsóknir á því sambandi á Íslandi. Í þessari ritgerð verður skoðar sambandið á milli PM2.5, PM10 og svefnleysis, ásamt því að skoða sveiflur í styrk svifryks milli árstíða og á milli þéttbýlis og dreifbýlis. Gögnin sem notuð verða í þessari ritgerð koma frá stórri, langtíma rannsókn, sem ennþá er í gangi og skoðar áhættuþætti fyrir skammdegisþunglyndi/ árstíðarsveiflum (seasonality). Notaður var The Bergen Insomnia Scale (BIS), BQ30 Air Quality Monitor og MPath snjallsíma smáforrit til þess að safna gögnum frá 120 þátttakendum þar sem skimað var fyrir svefnleysi og styrkur svifryks á heimilum þeirra mældur. Þátttakendur komu frá 28 bæjum og borgum á Íslandi og var skipt niður eftir dreifbýli (n = 53) og þéttbýli (n = 67). Úrtakið samanstóð af 32 körlum og 88 konum á aldrinum 20- 64 ára. Tölfræðileg greining sýndi ekki fram á tölfræðilegan marktækan mun milli hás styrks svifryks og svefnleysis (PM2.5 (p = .585); PM10 (p = .133). Á sama hátt var ekki tölfræðilega marktækur munur á milli styrks PM10 milli þéttbýlis og dreifbýlis (p = .145). Þvert á fyrri niðurstöður var styrkur PM2.5 tölfræðilega marktækt hærra hjá þátttakendum sem búa í dreifbýli á Íslandi (p = .047). Þrátt fyrir að ómarktæk tengsl hafi verið á milli styrks PM2.5 og PM10 og sveiflna í árstíðum (p = .215; p = .085) sýna gögn rannsóknarinnar að hæsta meðaltalið mældist yfir sumar (M = 11.82), auk þess að hæsta PM2.5 gildið mældist að vetri til (MAX = 53.25). Þrátt fyrir að takmarkanir eins og lítið úrtak gæti hafa haft áhrif á þessar ómarktæku niðurstöður er rannsóknin enn í gangi, til snemma árs 2026 og gætu frekari gögn skilað nákvæmari niðurstöðum. Með þessum óvæntu niðurstöðum, þar sem hærra gildi PM2.5 fannst í dreifbýli á Íslandi, ásamt háum styrk á sumrin og á ...