„Það má alltaf gera betur“ : eru nýútskrifaðir kennarar í stakk búnir til að takast á við „skóla án aðgreiningar“?

Meistararannsókn þessi fjallar um rannsókn sem höfundur gerði á mati ný útskrifaðra leikskólakennara á námi þeirra um stefnu Skóla án aðgreiningar. Markmið þessarar rannsóknar er að fá sýn útskrifaðra kennara á hvort þeir telji sig vera í stakk búna til að kenna eftir hugmyndafræði skóla án aðgreini...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Arna Hjaltadóttir 1997-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/47828
Description
Summary:Meistararannsókn þessi fjallar um rannsókn sem höfundur gerði á mati ný útskrifaðra leikskólakennara á námi þeirra um stefnu Skóla án aðgreiningar. Markmið þessarar rannsóknar er að fá sýn útskrifaðra kennara á hvort þeir telji sig vera í stakk búna til að kenna eftir hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og varpa ljósi á þeirra upplifun á kennaranáminu með skóla án aðgreiningar í brennidepli. Tilgangur þessarar rannsóknar er að fá sýn á hvort eitthvað megi gera betur þegar kemur að námi kennara í 5 ára háskólanámi þeirra svo hægt sé að mæta þörfum barna í leikskólum Íslands betur. Rannsóknarspurning sem rannsakandi lagði fram var: - Eru nýútskrifaðir kennarar í stakk búnir til að takast á við kennslu án aðgreiningar í leikskóla? Þýði rannsóknarinnar eru kennarar úr 7 sveitarfélögum sem hafa útskrifast með leyfisbréf kennara af leikskólakjörsviði síðastliðin 5 ár. Rannsóknaraðferð sem beitt var í þessari rannsókn er að mestu megindleg en þrjár opnar spurningar voru einnig í rannsókninni. Þá fór gagnaöflun fram á netinu með spurningakönnun. Rannsakandi sendi spurningalistann á 79 leikskóla en aðeins fengust 26 svör við rannsókninni. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að þátttakendur töldu kennslu á sviði skóla án aðgreiningar almennt ábótavant. Af þeim svörum sem bárust kom Háskóli Íslands verr út heldur en Háskólinn á Akureyri hvað varðar kennslu um hinar ýmsu aðgreiningar, hæst fór hlutfallið um og yfir 70% hjá Háskóla Íslands sem töldu að þeir hefðu ekki fengið kennslu um ákveðnar aðgreiningar á meðan hlutfallið fór hæst í 54,5% hjá Háskólanum á Akureyri. This M.Ed. thesis is based on a study conducted by the author on the assessment of newly graduated kindergarten teachers on their education about Inclusive School policy. The aim of this study is to get the view of graduated teachers on whether they believe they are ready to teach according to the philosophy of Inclusive Schools and to shed light on their experiences during the teacher training course with Inclusive Schools as the focus. The purpose of ...