Sálarlíf kennara. hvað með það? : fjárfestum í framtíðinni

Grunnskólakennarar gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu hvað varðar að mennta börnin okkar og skila þeim þannig út í samfélagið að þau verði hæfir einstaklingar, gagnrýnir og virkir þátttakendur í samfélaginu. Íslenskt samfélag hefur tekið töluverðum breytingum á undanförnum árum sem hafa haft be...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hjördís Ósk Einarsdóttir 1994-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/47803
Description
Summary:Grunnskólakennarar gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu hvað varðar að mennta börnin okkar og skila þeim þannig út í samfélagið að þau verði hæfir einstaklingar, gagnrýnir og virkir þátttakendur í samfélaginu. Íslenskt samfélag hefur tekið töluverðum breytingum á undanförnum árum sem hafa haft bein og óbein áhrif á starf grunnskólakennara og aukið álag þeirra í starfi. Markmið þessa verkefnis, sem er lokaverkefni til B.Ed.-prófs í kennarafræði við Kennaradeild Háskólans á Akureyri, var að komast að því hvort starfstengt álag og erfið málefni í starfi grunnskólakennara séu að hafa neikvæð áhrif á sálarlíf þeirra auk þess að leita svara við því hvort þörf væri á betra aðgengi fyrir grunnskólakennara að aðstoð sálfræðings eða annarra fagaðila til að takast á við vanlíðan vegna erfiðra mála í starfi. Niðurstöður nýlegra íslenskra rannsókna er varðar andlega heilsu grunnskólakennara eru ræddar og ýmsar breytingar sem orðið hafa á störfum kennara auk þess sem tekin voru viðtöl við nokkra kennara með áralanga starfsreynslu. Niðurstöðurnar eru að of mörgum grunnskólakennurum líður ekki nógu vel í starfi og að hátt hlutfall þeirra hefur veruleg eða alvarleg einkenni kulnunar, tilfinningaþrot meðal þeirra hefur aukist og stór hluti þeirra er yfir greiningarmörkum örmögnunar. Því er þörf á betra aðgengi grunnskólakennara að aðstoð sálfræðings eða annarra fagaðila til að vinna úr vanlíðan vegna erfiðra mála sem tengjast starfinu. Primary school teachers play a crucial role in society in terms of educating our children and integrating them into society as competent individuals, critical and active participants. Icelandic society has undergone significant changes in recent years, which have had direct and indirect effects on the work of primary school teachers and increased their workload. The goal of this bachelor thesis in teacher education at the University of Akureyri, was to find out whether job-related stress and difficult issues in the work of primary school teachers is having negative effects on their mental ...