Fiskeldi, gróðurhúsaframleiðsla og aquaponics á Íslandi : sjálfbær matvælaframleiðsla og efnahagsleg tækifæri

Ísland er þekkt fyrir fallega náttúru og óspillt umhverfi. Til þess að halda uppi eftirsóknarverðum lífsgæðum stendur landið frammi fyrir þeim áskorunum að nýta auðlindir sínar án þess að ganga of mikið á þær eða spilla þeim. Mikil tækifæri felast í sjálfbærri matvælaframleiðslu og nýtingu auðlinda,...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ragnhildur Rún Breiðdal 1998-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/47785
Description
Summary:Ísland er þekkt fyrir fallega náttúru og óspillt umhverfi. Til þess að halda uppi eftirsóknarverðum lífsgæðum stendur landið frammi fyrir þeim áskorunum að nýta auðlindir sínar án þess að ganga of mikið á þær eða spilla þeim. Mikil tækifæri felast í sjálfbærri matvælaframleiðslu og nýtingu auðlinda, jafnframt geta falist í því efnahagsleg tækifæri. Áhersla á sjálfbæra matvælaframleiðslu miðar að því að tryggja fæðuöryggi, þá sérstaklega vegna fólksfjölgunar í heiminum. Vegna landfræðilegrar legu þá treystir Ísland mikið á innflutt matvæli og getur því verið viðkvæmt fyrir ýmsum þáttum eins og heimsfaraldri, stríði og efnahagshruni. Einnig geta loftslagsbreytingar haft áhrif á innflutning matvæla. Ísland er ríkt af auðlindum eins og til dæmis jarðhita, vatnsorku og sjávarútvegi. Þessar auðlindir nýtast vel í fiskeldis-, gróðurhúsa- og aquaponics iðnaðinum og vert er að skoða hvernig hægt er að hámarka nýtingu þeirra án þess að gengið sé of mikið á auðlindina. Mikill áhugi og þróun hefur verið á nýrri tækni sem notuð er í fiskeldis-, gróðurhúsa- og aquaponics iðnaðinum, þar má nefna lóðréttan búskap, ræktun með LED lýsingu og vatnsræktun sem hefur hingað til skilað árangri og miklar vonir eru bundnar við til frekari þróunar. Verkefnið miðar að því að skoða hvernig fiskeldi, gróðurhúsaframleiðsla og aquaponics á Íslandi geta dregið úr þessum áskorunum með því að stuðla að sjálfbærri matvælaframleiðslu og á sama tíma að efnahagslegum tækifærum. Notast var við fræðilega gagnagrunna við leit að heimildum með áherslu á ritrýndar heimildir bæði á ensku og íslensku sem hafa verið birtar síðustu 5 ár til að tryggja það að fá nýjustu upplýsingar. Lykilorð: Aquaponics, Fiskeldi, Gróðurhúsaframleiðsla, Sjálfbærni, Efnahagur Iceland is known for its beautiful nature and pristine environment. In order to maintain a desirable quality of life, the country is faced with the challenges of using its resources without overusing them or spoiling them. Great opportunities lie in sustainable food production and utilization of ...