Redirecting phosphorus from wastewater : screening for phosphate accumulating bacteria from clam guts for potential wastewater remediation applications

Fosfór gegnir mikilvægu hlutverki í efnaskiptaferlum dreif- og heilkjarna frumna s.s. baktería, dýra og plantna. Þetta óendurnýjanlega steinefni er mikið notað í tilbúnum áburði í landbúnaði, en yfirvofandi skortur þess getur leitt til uppskerubrests og hungursneyðar á næstu árhundruðum ef ekkert ve...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ísold Egla Guðjónsdóttir 2000-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Bachelor Thesis
Language:English
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/47783
Description
Summary:Fosfór gegnir mikilvægu hlutverki í efnaskiptaferlum dreif- og heilkjarna frumna s.s. baktería, dýra og plantna. Þetta óendurnýjanlega steinefni er mikið notað í tilbúnum áburði í landbúnaði, en yfirvofandi skortur þess getur leitt til uppskerubrests og hungursneyðar á næstu árhundruðum ef ekkert verður að gert. Því er mikilvægt að loka hringrás fosfórs og koma í veg fyrir tap hans út í sjó, sem verður að hluta til vegna losunar skólps. Ísland er eftirbátur annarra vestrænna ríkja þegar kemur að skólphreinsun og sums staðar er óhreinsuðu skólpi enn veitt út í sjó. Áskoranir fráveitu á norðurslóðum felast m.a. í smæð byggðarlaga, köldu loftslagi og útþynntu skólpi. Markmið skólphreinsunar er að draga úr magni lífrænna og ólífrænna efna sem enda í viðtaka. Einn hluti hennar felst í að fjarlægja fosfór. Notkun sérhæfðra örvera (e. PAOs), sem hafa getu til að taka upp umframmagn fosfórs og mynda í leiðinni lífplast (e. PHA), í sérstöku “lifandi” kerfi (e. EBPR), hefur skilað bestum árangri. Fimm óþekktir bakteríustofnar úr meltingarvegi kúfskeljar (Arctica islandica) úr Eyjafirði voru rannsakaðir m.t.t. fosfatupptöku og lífplastframleiðslu í tveimur gerðum gerviskólps (næringarríku og næringarsnauðu) við loftháðar aðstæður. Fosfatupptaka og lífplastframleiðsla mældist hjá öllum stofnum. Mesta framleiðsla lífplasts var 0.89 g/L PHA í næringarsnauðu gerviskólpi. Fosfatupptaka stofnanna var 17-30% í næringarsnauðu skólpi þegar upphafsstyrkur fosfats var 15.3 mg/L, sem svipar til hefðbundins upphafsstyrks og upptöku örvera í skólphreinsistöðvum. Í næringarríku skólpi var fosfórupptakan breytilegri en nálgaðist í sumum tilfellum 85%, sem nálgast skilvirkni EBPR. Þessar niðurstöður gefa tilefni til frekari rannsókna, því örverustofnar einangraðir hérlendis eru aðlagaðir staðbundnum aðstæðum og gætu komið að gagni við bæði hreinsun og virðisaukningu skólps í landinu. Phosphorus serves an important role in the metabolism of both prokaryotes and eucaryotes, such as bacteria, animals and plants. This irreplaceable mineral ...