Áskoranir íslenskrar eldisbleikju : tækifæri og staða í dag

Verðmæti eldisafurða frá Íslandi hefur vaxið mikið síðustu ár og í náinni framtíð og með aukinni eftirspurn getur fiskeldi á Íslandi vaxið umtalsvert. Þetta getur haft marga jákvæða þætti í för með sér. Framleiðsla eldisbleikju á Íslandi hefur gengið vel í gegnum tíðina, framleitt magn hefur þó auki...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Guðdís Benný Eiríksdóttir 1996-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/47768
Description
Summary:Verðmæti eldisafurða frá Íslandi hefur vaxið mikið síðustu ár og í náinni framtíð og með aukinni eftirspurn getur fiskeldi á Íslandi vaxið umtalsvert. Þetta getur haft marga jákvæða þætti í för með sér. Framleiðsla eldisbleikju á Íslandi hefur gengið vel í gegnum tíðina, framleitt magn hefur þó aukist jafnt og þétt. Framleiðslan var mest 6.322 tonn árið 2019. Útflutningshlutfall eldisbleikju jókst um 113% árin 2010-2022 og framleiðir Ísland mest af eldisbleikju á heimsvísu. Þá námu verðmæti útfluttrar bleikju 4,11 milljörðum árið 2022. Markmið þessa verkefnis var að skoða vinnslu og markaði bleikju ásamt því að kanna stöðu og áskoranir íslenskrar eldisbleikju næstu árin. Til að fá betri innsýn í efnið voru tekin viðtöl við fólk sem starfar við bleikjueldi, sem koma að sölu- og markaðsmálum og framkvæmdastjórn. Lagður var fram spurningalisti fyrir hvern og einn sem var eins í grunninn en aðlagaður hverju sinni. Haft var samband við fimm fyrirtæki og fengust svör frá fjórum þeirra.Flutningur á ferskum fiskflökum fer ýmist fram með flugfrakt eða sjófrakt. Rannsóknir hafa sýnt fram á að með réttum aðbúnaði og kælingu er hægt að halda hitasveiflum í lágmarki í flutningi. Íslensk bleikja selst talsvert á alþjóðlegum mörkuðum, en talið er að hægt sé að auka það magn. Ein hugmyndin er að íslenskir bleikjuframleiðendur gætu markaðssett bleikjuna í sameiningu, í því gætu falist tækifæri. Þá væri með góðri markaðssetningu og sókn á markaði hægt að auka eftirspurn eftir íslenskri eldisbleikju enn frekar. The value of Icelandic farmed produce has grown greatly in recent years and in the near future and with increased demand, Icelandic aquaculture can grow significantly. This can have many positive factors. The production of farmed arctic char in Iceland has been good in the past, however the amount of production has increased steadily. The production was at a maximum of 6,322 tons in 2019. The export rate of farmed arctic char increased by 113% in 2010-2019 and Iceland produces the most farmed arctic char worldwide. The ...