Does momentum exist in women's top-league basketball in Iceland?

Markmið: Að ákvarða hvort: (I) útkoma fyrri skota hafi áhrif á næsta skot á eftir, (II) ef frammistöðubreytur hafi áhrif á útkomu skota, og (III) ef útkoma fyrri skota hafi áhrif á frammistöðubreytur í næsta skoti. Aðferð: Skot úr 10 leikjum í efstu deild kvenna í körfubolta á Íslandi skoðuð (n=128)...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Björg Lindberg Pálsdóttir 1992-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Master Thesis
Language:English
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/47666
Description
Summary:Markmið: Að ákvarða hvort: (I) útkoma fyrri skota hafi áhrif á næsta skot á eftir, (II) ef frammistöðubreytur hafi áhrif á útkomu skota, og (III) ef útkoma fyrri skota hafi áhrif á frammistöðubreytur í næsta skoti. Aðferð: Skot úr 10 leikjum í efstu deild kvenna í körfubolta á Íslandi skoðuð (n=128). Gögn sjö frammistöðubreyta safnað úr hverjum leik fyrir hvert skot. Kí-kvaðrat próf (Chi square test of independence) notað til að ákvarða hvort útkoma fyrri skota hafi áhrif á næsta skot á eftir, einnig notað til að bera saman staðsetningu skota og prósentu af skoruðum körfum. Wilcoxon próf og Friedmans próf notuð til að ákvarða hvort útkoma fyrri skota hafi áhrif á staðsetningu næsta skots. Wilcoxon próf og Friedmans próf notuð til að skoða tengingu milli skota og frammistöðubreyta. Niðurstöður: Þrjú lið sýndu merki um meðbyr (positive momentum) því marktækur munur fannst milli útkomu skota og útkomu fyrri skota (p<0,05). Útkoma skota hafði ekki marktæk áhrif á staðsetningu skota (p>0,05). Marktækur munur var milli frammistöðubreyta og skota (p<0,05) en enginn marktækur munur fannst milli útkomu fyrri skota og frammistöðubreyta (p>0,05). Niðustöðurnar styðja enga af þremur fræðilegu líkönunum um meðbyr og mótbyr fram yfir aðra. Umræður: Skortur á meðbyr í flestum leikjunum gæti verið útskýrður með lélegri skotnýtingu í efstu deild kvenna í körfubolta (minna en 50% af 2 stiga skotum voru skoruð). Ekki er hægt að réttlæta með núverandi niðurstöðum að nota staðsetningu skota þegar meðbyr eða mótbyr (negative momentum) er rannsakaður. Frammistöðubreytur hafa áhrif á niðurstöðu skota en niðurstöður fyrri skota hefur ekki áhrif á frammistöðubreytur í næstu skotum. Leitarorð: Körfubolti, meðbyr, mótbyr, hot hand, útkoma skota Objectives: To determine if: (I) shot outcome is associated with the outcome of the previous shot, (II) if shot outcome is affected by performance variables of shots, and (III) if performance variables of shots are influenced by the previous shot outcome. Methods: Shooting performance ...