Hæfniviðmið og námsefnisframboð MMS í tónmennt : hversu vel uppfyllir Menntamálastofnun kröfur aðalnámskrár um hæfniviðmið í tónmennt og hvernig?

Verkefnið styðst við Aðalnámskrá grunnskóla 2011, Greinasvið 2013, sem var gildandi þegar verkefnið var ritað. Þegar verkefninu var skilað hafði nafni Menntamálastofnunar verið breytt í Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Þegar verkefninu er skilað standa yfir breytingar á aðalnámskrá grunnskóla og...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hallur Guðmundsson 1970-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/47574
Description
Summary:Verkefnið styðst við Aðalnámskrá grunnskóla 2011, Greinasvið 2013, sem var gildandi þegar verkefnið var ritað. Þegar verkefninu var skilað hafði nafni Menntamálastofnunar verið breytt í Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Þegar verkefninu er skilað standa yfir breytingar á aðalnámskrá grunnskóla og höfðu einhverjar breytingar verið kynntar en þær höfðu ekki tekið gildi. Í gegnum tíðina hefur sú stofnun sem sér um útgáfu námsbóka á Íslandi borið talsverða ábyrgð á því að útvega kennsluefni við hæfi í grunnskóla landsins. Í lögum um Menntamálastofnun er kveðið á að stofnunin eigi að útvega skólum námsefni til að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í hæfniviðmiðum gildandi Aðalnámskrár grunnskóla frá 2011, greinasvið 2013. Í þessu verkefni er farið yfir þau hæfniviðmið sem snúa beint að tónmennt og því námsefni sem lýtur beint að tónmenntakennslu. Er námsefnið parað saman við hæfniviðmiðin og litið á hvort Menntamálastofnun sé að sinna tónmennt eins og lög gera ráð fyrir. Niðurstaðan var einföld, stofnunin er talsvert langt frá því að geta uppfyllt kröfur aðalnámskrár varðandi námsefnisframboð í tónmennt. Sett er fram tilgáta um ástæður skortsins með vísan í opinber gögn. Enn fremur er bent á að námsefnið sem í boði er standist ekki allt tímans tönn og uppfæra þurfi talsvert magn efnis. Þetta leiðir til þess að tónmenntakennarar á Íslandi þurfa að útbúa sitt eigið efni í stórum stíl eða útfæra efni sem fengið er frá kollegum eða einfaldlega úr hugmyndabönkum erlendis frá. Í lok verkefnisins eru lagðar fram hugmyndir að breyttum áherslum í námsefni og við framsetningu námsefnis sem fylgir nútíma aðferðum, hugmyndum og tíðaranda. Through the years, there has been a state driven publishing company for schoolbooks and it has been responsible for delivering apropriate study books to the compulsary schools of Iceland. Legislation regarding Menntamálastofnun (Institution of Education matters) states that the institution shall provide teaching and study material so that schools can fulfil the competence criteria in the ...