Skattaleg heimilisfesti einstaklinga : er þörf á breytingum með hliðsjón af lögum um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018?

Þann 1. janúar 2019 tóku ný lög gildi, lög um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018. Lögin fólu í sér þau nýmæli að óheimilt er að eiga lögheimili á Íslandi, eigi viðkomandi einstaklingur lögheimili erlendis. Þá var einnig lögfest sú framkvæmd að ef einstaklingur dvelst lengur en sex mánuði erlendis, þá...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Birta María Sigmundsdóttir 1999-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/47421
Description
Summary:Þann 1. janúar 2019 tóku ný lög gildi, lög um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018. Lögin fólu í sér þau nýmæli að óheimilt er að eiga lögheimili á Íslandi, eigi viðkomandi einstaklingur lögheimili erlendis. Þá var einnig lögfest sú framkvæmd að ef einstaklingur dvelst lengur en sex mánuði erlendis, þá telst hann hafa tekið upp búsetu þar. Skilgreining á lögheimili manns er ráðandi við mat á skattalegri heimilisfesti einstaklinga hér á landi. Markmið ritgerðarinnar er að útlista þær reglur sem gilda um skattalega heimilisfesti einstaklinga hér á landi, með hliðsjón af íslenskri dóma- og úrskurðarframkvæmd, nýjum lögheimilislögum og samsvarandi reglum nágrannaríkja Íslands. Leitast verður eftir því að svara þeirri spurningu hvort þörf sé á sérstakri skilgreiningu á hugtakinu skattalegri heimilisfesti í tekjuskattslögum nr. 90/2003, í stað þess að styðjast við lögheimilislög. Farið verður yfir áhrif undirstöðureglna íslenskrar stjórnskipunar á skatta- og lögskýringarsjónarmið skattaákvæða. Auk þess verður farið yfir skattdrifnar ráðstafanir og almenn atriði sem tengjast skattskyldu einstaklinga. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru að þær lagabreytingar sem gerðar voru á lögheimilislögum hafi ekki verið nægjanlega úthugsaðar varðandi áhrif á skattalega heimilisfesti einstaklinga en tíminn mun leiða í ljós að hve miklu leyti framkvæmd ákvæðisins hefur áhrif á íslenska skattborgara. Auk þess er það niðurstaða höfundar að í samræmi við stjórnskipuleg skilyrði skattlagningar og þær kröfur sem gerðar eru til skýrleika lagaheimilda að tilefni sé til þess að löggjafinn kanni hvort þörf sé á að taka upp sérstakar reglur um skattalega heimilisfesti og sett verði sérstök skilgreining á hugtakinu í tekjuskattslög. The law on Domicile and Residence no. 80/2018 entered into force January 1, 2019. The new laws state that it is prohibited to have legal domicile in Iceland if an individual has legal domicile abroad. Furthermore, it was enacted that if an individual spends more than six months abroad, he is considered to have ...