Jón, Gunna og listaspírurnar. Almenningur og elíta á listahátíðinni Akureyrarvöku
Í þessari ritgerð er fjallað um Akureyrarvöku sem er lokahátíð Listasumars á Akureyri og er haldin þá helgi er næst kemst afmælisdegi bæjarins 29. ágúst. Fjallað er um Akureyrarvökuna út frá tengslum þekkingar og valds og hvernig almenningur tekur þátt í hátíðinni. Stuðst er við rannsóknir á smekk f...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2010
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/4709 |
Summary: | Í þessari ritgerð er fjallað um Akureyrarvöku sem er lokahátíð Listasumars á Akureyri og er haldin þá helgi er næst kemst afmælisdegi bæjarins 29. ágúst. Fjallað er um Akureyrarvökuna út frá tengslum þekkingar og valds og hvernig almenningur tekur þátt í hátíðinni. Stuðst er við rannsóknir á smekk fólks eftir menntun og stöðu og hvernig mismunandi þjóðfélagshópar upplifa menningu. Fyrst er fjallað um þær kenningar og hugtök sem ritgerðin byggir á og dregnar eru þær línur sem stuðst er við í umfjölluninni um Akureyrarvöku. Umfjöllunin er tvíþætt og byggir annars vegar á hlið yfirvalda og skipuleggjenda hátíðarinnar og hinsvegar á hlið almennings. Upplifun einstaklinga frá ólíkum sviðum samfélagsins er svo skoðuð í sambandi við hátíðina og þær hugmyndir sem fólk hefur um Akureyrarvöku. Markmið þessarar ritgerðar er að skoða hvað það er sem veldur því að almenningur tekur almennt meiri þátt í lista- og menningarviðburðinum Akureyrarvöku heldur en öðrum viðburðum í sama dúr á Akureyri á öðrum tímum. |
---|