„Við þurfum að horfa á þetta sem epli og epli sem síðan er aldrei epli og epli“: Árangur innleiðingar IFRS 16 og áhrif hennar á skráð félög á Íslandi.

IFRS 16, nýr reikningsskilastaðall um leigusamninga, tók gildi í byrjun árs 2019. Markmið hans var að auka samanburðarhæfni milli fyrirtækja, ásamt því að auka gagnsæi í reikningsskilum. Með innleiðingunni urðu talsverðar breytingar á því hvernig félög sem beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum fær...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Þorkell Már Einarsson 1995-, Gylfi Geir Gylfason 1991-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/47039
Description
Summary:IFRS 16, nýr reikningsskilastaðall um leigusamninga, tók gildi í byrjun árs 2019. Markmið hans var að auka samanburðarhæfni milli fyrirtækja, ásamt því að auka gagnsæi í reikningsskilum. Með innleiðingunni urðu talsverðar breytingar á því hvernig félög sem beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum færa leigusamninga í reikningsskilum sínum. Samkvæmt rannsóknum á eldri staðli um leigusamninga, IAS 17, voru flestir leigusamningar skilgreindir þar sem rekstrarleigusamningar. Rekstrarleigusamningar voru gjaldfærðir í bókhaldi félaganna og því utan efnahagsreiknings. Í nýja staðlinum eru allir leigusamningar skilgreindir sem fjármögnunarleigusamningar en þá þarf að færa inn í efnahagsreikning félaganna, í eignarhlutann leigueign og skuldarmegin leiguskuldbindingu. Markmið ritgerðarinnar var tvíþætt; annars vegar að greina bein áhrif IFRS 16 á ákveðna þætti ársreikninga skráðra félaga sem og kennitölur þeirra og hins vegar meta hvernig innleiðing staðalsins tókst til hjá skráðum félögunum. Helstu niðurstöður okkar voru að innleiðingin hafði töluverð áhrif á ársreikninga og kennitölur skráðra félaga á Íslandi. Efnahagsreikningur félaganna blés út með innkomu leigueigna og leiguskulda og urðu fjarskiptafélög og flutningafélög fyrir mestum áhrifum nýja staðalsins en fasteignafélög fyrir minnstum áhrifum. Niðurstaða okkar varðandi hvernig innleiðingin hafi tekist til hjá skráðu félögunum er sú að hún hefur gengið vel þó svo að mikil vinna hafi verið unnin við innleiðingu staðalsins. Í upphafi þurftu öll félögin á utanaðkomandi sérfræðiaðstoð að halda þar sem miklar breytingar hafið orðið á reikningshaldslegri meðferð leigusamninga hjá félögunum. Í dag aftur á móti segjast þau hafa nægjanlega þekkingu innanhúss og leita ekki sérfræðiaðstoðar nema í undantekningartilvikum.