Sjálfbærnistaðlar Evrópusambandsins á Íslandi: Innleiðing og áhrif sjálfbærnistaðla á ársreikninga íslenskra fyrirtækja

Markmið ritgerðarinnar er að skoða sjálfbærnistaðla Evrópusambandsins ásamt því að sjá hvaða áhrif staðlarnir hafa á íslenska ársreikninga. Regluverk sjálfbærnistaðlanna getur verið yfirþyrmandi við fyrstu sýn, en þegar kafað er betur ofan í kjölinn sést að það var ekki spurning um hvort heldur hven...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristjana Hlín Valgarðsdóttir 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/46978
Description
Summary:Markmið ritgerðarinnar er að skoða sjálfbærnistaðla Evrópusambandsins ásamt því að sjá hvaða áhrif staðlarnir hafa á íslenska ársreikninga. Regluverk sjálfbærnistaðlanna getur verið yfirþyrmandi við fyrstu sýn, en þegar kafað er betur ofan í kjölinn sést að það var ekki spurning um hvort heldur hvenær slíkir staðlar myndu verða innleiddir. Farið verður yfir sjálfbærnistaðla sem Evrópusambandið hefur gefið út, þeir fjalla um umhverfismál, samfélagslega þætti ásamt stjórnarháttum. Tveir staðlar tengjast þvert á þessa þrjá þætti og flokkast þeir sem almennir staðlar. Ljóst er að mikil vinna er fram undan við að skilgreina betur sjálfbærnistaðlana fyrir þau fyrirtæki sem falla ekki undir fyrir fram skilgreind fyrirtæki samkvæmt EFRAG. Niðurstöður gefa til kynna að sjálfbærnistaðlarnir munu breyta því hvernig fyrirtæki munu starfa og nauðsynlegt er að auka þjálfun starfsfólks til að mæta þeim kröfum sem staðlarnir setja fram. Sjálfbærnistaðlarnir geta aukið virði og orðspor fyrirtækjanna ásamt því að minnka umhverfisáhrifin fyrir komandi kynslóðir.