„Næturnar í Keflavík þær sitja enn í mér“: Um sérstöðu ljóða og ljóðheims kef LAVÍKur

Þegar textagerð hljómsveitarinnar kef LAVÍKur er borin saman við aðra textagerð í íslenskum hipphopp og popp senum, má sjá stórmikinn mun. Um er að ræða hljómsveit sem gefur nær einvörðungu út það sem kalla má jaðartónlist, en hefur þrátt fyrir það tekist að færa texta sína í mun ljóðrænni og skáldl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Magnús Orri Aðalsteinsson 2001-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/46608
Description
Summary:Þegar textagerð hljómsveitarinnar kef LAVÍKur er borin saman við aðra textagerð í íslenskum hipphopp og popp senum, má sjá stórmikinn mun. Um er að ræða hljómsveit sem gefur nær einvörðungu út það sem kalla má jaðartónlist, en hefur þrátt fyrir það tekist að færa texta sína í mun ljóðrænni og skáldlega þróaðari búning en almenn tíðkast á jaðrinum. Í stað þess að fylgja vinsældastraumum og leggja áherslu á hið ytra, peningadýrkun, ofbeldishneigð, persónulega upphafningu og yfirborðskennd samskipti kynjanna vildi Ármann Örn Friðriksson, textasmiður sveitarinnar, gera eitthvað nýtt og óvenjulegt. Þetta birtist í óvenjulega dimmum ljóðheimi sem er ögrandi enda er þar horfst í augu við djúpstæða og mjög mannlega hugaróra sem eru jafnframt litríkir og skáldlegir. Undir áhrifum víða að, bæði úr íslenskri og erlendri bókmennta- og menningarsögu eru dregnar upp óhugnanlegar myndir af játningum, eiturlyfjaneyslu, hnignun (fr. décadence) og ástarlotum í óheilbrigðu ástarsambandi. Myndirnar eru ýmist tjáðar á hispurslausan hátt, án nokkurra málalenginga eða framandgerðar með táknum, persónugervingum, skírskotunum og skáldlegu máli. Áhersla á hina persónulegu og óhugnanlegu hlið mannlegrar verundar, hið yfirskilvitlega og óáþreifanlega, sem og á andstæðukennda táknmyndun, hefur skapað kef LAVÍK enn frekari sérstöðu í lagatextum samtímans og fært hana nær nýrómantískri ljóðlist eins og fjallað er um í ritgerðinni.