Summary: | Þvottahöllin er lokaverkefni til MA prófs í ritilist við Háskóla Íslands. Verkið er kvikmyndahandrit og fjallar um vinkonurnar Öglu og Ester, sem vinna í þvottahúsi- og efnalaug í Reykjavík. Báðar úr Eyjum en fluttu upp á land af ólíkum ástæðum. Agla er sú sem ræður ríkjum í vinnusalnum. Óþolinmóð, hörð í horn að taka, nagli og þolir ekki aumingja sem nenna ekki að vinna. Hreinn framkvæmdastjóri treystir á Öglu og umber ýmislegt í fari hennar. Þegar Höskuldur, fatlaður maður, hefur störf hjá fyrirtækinu fer af stað atburðarás sem Öglu óraði ekki fyrir. Af hverju vill Agla losna við Höskuld og munu þau herbrögð sem hún beitir skila árangri eða verða henni að falli? Hér er á ferðinni æsispennandi saga um völd og valdaleysi, áföll, vináttu og réttlæti á frjálsum vinnumarkaði.
|