Stöðugar samsætur í óstöðugu umhverfi: Mynstur δ13C og δ15N í jarðvegi mýrlendis

Stöðugar samsætur kolefnis og niturs sýna ákveðin gildi út frá mismunandi lífefnafræðilegum ferlum. Frábrugðin gildi δ13C og δ15N í jarðvegi mýrlenda geta því gefið vísbendingar um breytingar á umhverfisaðstæðum. Mýrlendi eru mikilvæg vistkerfi meðal annars vegna mikils magn lífrænna efna sem varðve...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Róbert Ívar Arnarsson 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/46258
Description
Summary:Stöðugar samsætur kolefnis og niturs sýna ákveðin gildi út frá mismunandi lífefnafræðilegum ferlum. Frábrugðin gildi δ13C og δ15N í jarðvegi mýrlenda geta því gefið vísbendingar um breytingar á umhverfisaðstæðum. Mýrlendi eru mikilvæg vistkerfi meðal annars vegna mikils magn lífrænna efna sem varðveitast þar í langan tíma. Gjóskufall í kjölfar eldvirkni og áfok eykur hins vegar magn steinefna í mýrajarðvegi á Íslandi. Notkun á δ13C og δ15N gildum getur því verið gagnleg til að skilja áhrif áfoks enn betur. Rannsókn þessi spyr hvort hægt sé að nota δ13C og δ15N gildi til að meta þróun mýra og áhrifaþætti hennar. Kannað er hvort gildi δ13C og δ15N breytast í kringum gjóskulög eða vegna áfoks, hvort aukning á niðurbroti gerist í kringum gjóskulög eða vegna áfoks, hvort fylgni sé á milli niðurbrotsvísa og breytinga á δ13C og δ15N og hvort breyting δ13C og δ15N gilda endurspegli umhverfisaðstæður við uppsöfnun kolefnis. Jarðvegskjarni var sóttur úr þremur mýrlendum á Norðvesturlandi og C/N hlutföll, glæðitap, rúmþyngd, uppsöfnun kolefnis og δ13C og δ15N gildi könnuð. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til að gildi δ13C og δ15N séu áreiðanlegir vísar á mismunandi aðstæður og breytinga í umhverfi mýrlenda. Stable isotopes of carbon and nitrogen give specific values depending on different biochemical processes. Different values of δ13C and δ15N in the soils of peatlands can give different indication of changing environmental conditions. Peatlands are important ecosystems due to the large amounts of organic material they preserve, among other things. How ever, tephra deposits following volcanic activity and eolian movement of mineral matter are an important influence on peatland development in Iceland. The usage of δ13C and δ15N can be useful to understand the effects of tephra deposits and eolian processes on peatland soil development. This investigation asks if it is possible to use δ13C and δ15N to evaluate the development of peatlands in Iceland and determine influencing factors. To answer this, I specifically ...