Borgarlína í kastljósi fjölmiðla: Hvernig afstaða stjórnmálaflokka gagnvart samgöngusáttmálanum og Borgarlínunni birtist kjósendum í fréttum

Samgöngur eru eitt mikilvægasta úrlausnarefni borgarsamfélaga sem stjórnvöld takast á um og þar er Reykjavík engin undantekning. Í Reykjavík hefur lengi verið deilt um samgöngur og uppi eru ólíkar hugmyndir um hvort leggja skuli meiri áherslu á almenningssamgöngur eða einkasamgöngur. Þrátt fyrir það...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sindri Freyr Ásgeirsson 1996-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/46180
Description
Summary:Samgöngur eru eitt mikilvægasta úrlausnarefni borgarsamfélaga sem stjórnvöld takast á um og þar er Reykjavík engin undantekning. Í Reykjavík hefur lengi verið deilt um samgöngur og uppi eru ólíkar hugmyndir um hvort leggja skuli meiri áherslu á almenningssamgöngur eða einkasamgöngur. Þrátt fyrir það hefur fjölmiðlaumfjöllun um samgöngur lítið verið rannsökuð hérlendis. Því er vert að rannsaka hvernig afstaða stjórnmálaflokka í Reykjavík í samgöngumálum, nánar tiltekið gagnvart Borgarlínunni og samgöngusáttmálanum, birtist kjósendum í fjölmiðlum. Í þessar rannsókn er rýnt í umfjöllun fjölmiðla í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 2018 og 2022 og aðdraganda þess að ritað var undir samgöngusáttmálann árið 2019. Niðurstöður innihaldsgreiningarinnar benda til þess að umfjöllun fjölmiðla beinist langmest að tveimur stærstu flokkunum sem bjóða fram til borgarstjórnar og allra helst á afstöðu leiðtoga þeirra. Þessi tveir flokkar eru Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin sem eru hvor á sínum endanum í afstöðu sinni gagnvart þessum málaflokki. Einnig er velt upp þeirri spurningu hvort fjölmiðlar hafi áhrif á það hvernig þessi afstaða stjórnmálaflokkanna birtist kjósendum. Þótt erfitt sé að fullyrða um slíkt eru merki þess í niðurstöðum þessarar rannsóknar. Þar má helst nefna mikinn áhuga fjölmiðla á fjármálum en algengara var að fjölmiðlar legðu áherslu á fjárhagsmál í tengslum við Borgarlínu og samgöngusáttmálann en Dagur B. Eggertsson, leiðtogi Samfylkingarinnar. Þannig virðast fjölmiðlar geta haft áhrif á það hvernig afstaða stjórnmálaflokka birtist kjósendum en þó aðeins varðandi samhengi afstöðunnar en ekki afstöðuna sjálfa. Transportation is one of the most important issues that local governments deal with and Reykjavík is no exception. In Reykjavík, there has long been a debate concerning transportation and there is a difference of opinion whether the focus should be on public or private transportation. Despite the fact that the topic has been hotly debated there is scarcity in research concerning media ...