Gamlar og nýjar götur á Reykjanesskaga

Um Reykjanesskagann allan liggur net gamalla gönguleiða sem lágu ýmist á milli bæja, verstöðva eða út af svæðinu og til annarra landshluta. Reykjanesskaginn hefur ekki allur verið vinsæll til útivistar og þá einna helst vegna vanþekkingar fólks á landsvæðinu. Eftir eldgosin við Fagradalsfjall 2021-2...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helgi Valdimar Viðarsson Biering 1968-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/46014
Description
Summary:Um Reykjanesskagann allan liggur net gamalla gönguleiða sem lágu ýmist á milli bæja, verstöðva eða út af svæðinu og til annarra landshluta. Reykjanesskaginn hefur ekki allur verið vinsæll til útivistar og þá einna helst vegna vanþekkingar fólks á landsvæðinu. Eftir eldgosin við Fagradalsfjall 2021-2023 komst Reykjanesskaginn á útivistarkort landsmanna og erlendra ferðamanna sem nú lenda ekki einungis í Keflavík og mögulega fara í Bláa Lónið, heldur gera sér far um að skoða nágrenni flugvallarins og Reykjanesskagans. Kynningarstarf er hafið, en gera má betur. Höfundur mun leggja sitt af mörkum við að kynna sögu svæðisins með útgáfu gönguleiðabókar ásamt því að bjóða upp á sögugöngu, gera heimildarmynd og útvarpsþátt. Gönguleiðir bókarinnar eru tíundaðar hér, en ein þeirra er tekin út fyrir sviga og kynnt sérstaklega.