"Með fagmennskuna að leiðarljósi" : hlutverk og framtíðarsýn fagmenntaðra leiðsagnarkennara og hagnýting framhaldsnáms þeirra á vettvangi.

Fagleg leiðsögn er talin vera afar brýn og meginforsenda þess að nýliðar gefist ekki upp á vettvangi kennslunnar við upphaf starfsferils síns í margbreytilegu umhverfi skólasamfélagsins. Markmiðið með rannsókn þessari er að varpa ljósi á hlutverk fagmenntaðra leiðsagnarkennara í grunnskólum á höfuðb...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Auður Ósk Óskarsdóttir 1970-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/45899
Description
Summary:Fagleg leiðsögn er talin vera afar brýn og meginforsenda þess að nýliðar gefist ekki upp á vettvangi kennslunnar við upphaf starfsferils síns í margbreytilegu umhverfi skólasamfélagsins. Markmiðið með rannsókn þessari er að varpa ljósi á hlutverk fagmenntaðra leiðsagnarkennara í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og hvernig framhaldsnám þeirra í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf nýtist þeim í starfi. Um er að ræða eigindlega rannsókn sem felur í sér viðtöl við tíu leiðsagnarkennara í jafnmörgum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Viðtölin fóru fram síðla árs 2022 og í upphafi árs 2023. Allir viðmælendur búa yfir víðtækri reynslu úr kennarastarfinu og hafa jafnframt lokið framhaldsnámi, ýmist í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf eða í stjórnun menntastofnana. Leitast var við að átta sig á sameiginlegri reynslu viðmælenda og upplifun þeirra á hlutverki sínu sem og hvernig framhaldsnám þeirra nýtist þeim í starfi sínu. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa glöggt til kynna að gott aðgengi að fagmenntuðum leiðsagnarkennara á vettvangi er nauðsynlegt. Það er talið leiða til faglegra samræðna um fagvitund og stuðla að farsæld í kennarastarfinu. Samræður þurfa að byggjast á dyggðum á borð við virðingu, traust og trúnað. Greina má af orðum viðmælenda að tími til ígrundunar og gagnrýninna uppbyggilegra hugsana er naumur á annasömum skóladegi en jafnframt er brýnt að efla með nýliðum og starfsnámsnemum seiglu og þrautseigju. Því má draga þá ályktun út frá niðurstöðum að þörf sé á að skilgreina með skýrari hætti hlutverk leiðsagnarkennara í grunnskólum til að starf þeirra skili þeim faglega árangri sem til er ætlast og að framhaldsnám á sviði stafstengdrar leiðsagnar og kennsluráðgjafar nýtist sem best á vettvangi. This study focuses on the significance of professionally trained guidance teachers in primary schools in the greater Reykjavík area, emphasizing their postgraduate studies in job-related guidance and teaching advice. Professional guidance is considered to be extremely urgent and the main prerequisite for ...