„Þetta er bara crash course í lifeskills 101“ : reynsla ungra kvenna af námi í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík á árunum 2017–2019
Hlutverk húsmæðraskólanna var ávallt að mennta ungar stúlkur fyrir starf þeirra sem húsmæður. Seinna var nafninu breytt í hússtjórnarskóla með jafnrétti að leiðarljósi og var hann þá fyrir öll kyn. Markmið þessarar ritgerðar er að kanna áhrif náms í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík með því að ræða vi...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Bachelor Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2023
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/45558 |
Summary: | Hlutverk húsmæðraskólanna var ávallt að mennta ungar stúlkur fyrir starf þeirra sem húsmæður. Seinna var nafninu breytt í hússtjórnarskóla með jafnrétti að leiðarljósi og var hann þá fyrir öll kyn. Markmið þessarar ritgerðar er að kanna áhrif náms í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík með því að ræða við nokkrar ungar konur um námið. Markmið verkefnisins er að svara þremur rannsóknarspurningunum: Hvað vakti áhuga ungra kvenna á náminu í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík? Hvernig var námsdvölin? Hvert hefur gagnið verið af náminu á árunum frá því lauk? Rannsóknin var gerð með eigindlegri aðferðafræði og tekin voru viðtöl við fimm stúlkur sem höfðu farið í Hússtjórnarskólann í Reykjavík á árunum 2017–2019. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að áhugi og fjölskylda séu megin áhrifavaldar þess að ungar stúlkur hafi áhuga á náminu í Hússtjórnarskólanum. Hússtjórnarskólinn er einnig algengt skref eftir framhaldsskólaútskrift og er hann þáttur í að gera eitthvað fyrir sjálfan sig. Allar minnast stúlkurnar námsdvalarinnar á góðan hátt og hefur gagnið af náminu verið gott á marga vegu. Allar fundu þær fyrir auknu öryggi við eldhússtörf og þrif en einnig fundu þær fyrir annars konar áhrifum eins og að læra þolinmæði og aga. |
---|