Ofbeldi þjónustunotenda í garð starfsfólks á íbúðakjörnum í þjónustuflokki IV : mat á viðbrögðum Reykjavíkurborgar

Í þessari ritgerð verður fjallað um hvernig íbúðakjarnar í þjónustuflokki IV á vegum Reykjavíkurborgar takast á við ofbeldi þjónustunotenda í garð starfsfólks. Skoðað verður hvar styrkleikar verklags liggja og hvað er ábótavant. Störf höfunda á þessu sviði hjá Reykjavíkurborg vöktu áhuga á að rannsa...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Bjarki Gíslason 1990-, Halldór Guðsteinn Guðsteinsson 1991-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/45527
Description
Summary:Í þessari ritgerð verður fjallað um hvernig íbúðakjarnar í þjónustuflokki IV á vegum Reykjavíkurborgar takast á við ofbeldi þjónustunotenda í garð starfsfólks. Skoðað verður hvar styrkleikar verklags liggja og hvað er ábótavant. Störf höfunda á þessu sviði hjá Reykjavíkurborg vöktu áhuga á að rannsaka þennan málaflokk með það að markmiði að bæta lífskjör þjónustunotenda og vinnuumhverfi starfsfólks með betri viðbrögðum og fyrirbyggjandi aðgerðum við ofbeldi. Ofbeldi þjónustunotenda í garð starfsfólks er staðreynd innan íbúðakjarna í þjónustuflokki IV á vegum Reykjavíkurborgar. Atvikin geta verið af ólíkum toga og eiga sér fjölmargar ástæður og uppruna. Afleiðingar ofbeldisins geta verið allt frá minni háttar andlegum skaða eða líkamlegu tjóni yfir í varanlega örorku að hluta eða að fullu. Þörf er á umræðu, bættum verkferlum, bættri þjálfun og meiri fræðslu til þess að fyrirbyggja að slík atvik eigi sér stað og einnig til þess að bregðast rétt við atvikunum þegar það á við en atvikin geta leitt af sér kulnun og aukna manneklu sem bitnar á gæðum þjónustunnar. Markmiðið er að greina verkferla tengda ofbeldi sem starfsfólk verður fyrir á íbúðakjörnum í þjónustuflokki IV, rýna til gangs og auka gegnsæi. Í rannsókninni verður skoðað hvaða fræðslu og þjálfun starfsfólk hlýtur og mat lagt á hvort það sem kennt er nýtist í atvikum tengdum ofbeldi og hvort þörf sé á endurbótum. Erlend fræðsla og þjálfun sem gæti nýst starfsfólki íbúðakjarna verður skoðuð og einnig rannsóknir sem gerðar hafa verið í tengslum við ofbeldi þjónustunotenda í garð starfsfólks, handleiðslu fyrir starfsfólk og ástæðurnar sem liggja að baki ofbeldishegðunar. Rannsóknir sýna að strangur rammi, samskiptaörðugleikar og það að sjálfræði einstaklingsins sé hunsað auki líkurnar á ofbeldishegðun. Ofbeldi getur einnig leitt af sér aukna valdbeitingu og nauðung og áhersla verður lögð á aðferðir sem miða að því að komið verði í veg fyrir nauðung og þvingun eins og kostur er, sem og annars konar inngrip í friðhelgi og sjálfsákvörðunarrétt einstaklingsins. Í ...