„Mig langar svo bara að þú verðir eins og fiskur í vatni!" : endurskoðun aðalnámskrár tónlistarskóla og framtíðarsýn um þróun tónlistarnáms í hafsjó möguleika

Í tengslum við umræður um framtíðaruppbyggingu tónlistarnáms á Íslandi hefur það sjónarmið komið skýrt fram að stuðla þurfi með markvissari hætti að því að tónlistarnám verði aðgengilegt og raunverulegur valkostur fyrir öll börn. Þetta tengist hugmyndinni um menntun fyrir alla og þar með jöfnu aðgen...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Dagný Arnalds 1976-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/45391
Description
Summary:Í tengslum við umræður um framtíðaruppbyggingu tónlistarnáms á Íslandi hefur það sjónarmið komið skýrt fram að stuðla þurfi með markvissari hætti að því að tónlistarnám verði aðgengilegt og raunverulegur valkostur fyrir öll börn. Þetta tengist hugmyndinni um menntun fyrir alla og þar með jöfnu aðgengi að námi sem opinber menntastefna grundvallast á. Á ráðstefnunni Tónlist er fyrir alla sem haldin var haustið 2022 ræddu ríflega fjögur hundruð þátttakendur fjórar lykilspurningar í hópaumræðum. Spurningarnar snerust meðal annars um það hvernig stuðla megi að því að tónlistarnám verði fyrir alla og hvernig árangur í tónlistarnámi er skilgreindur. Nokkrum mánuðum seinna hófst formleg undirbúningsvinna vegna endurskoðunar aðalnámskrár tónlistarskóla, en gildandi aðalnámskrá kom út árið 2000 og hefur fram að þessum tímapunkti ekki verið endurskoðuð. Þau sjónarmið sem komu fram í hópaumræðunum fela í sér mikilvægar vísbendingar sem gætu gagnast við þá stefnumótun. Með þemagreiningu á svörum þátttakenda varpa ég ljósi á leiðir til þess að byggja á þeirri dýrmætu reynslu sem tónlistarskólakerfið býr yfir um leið og ég horfi til nýrra möguleika í þróun tónlistarnáms á Íslandi en fram kom að þrátt fyrir marga kosti tónlistarskólakerfisins upplifa tónlistarkennarar að ákveðinna breytinga sé þörf. Þær breytingar snúa meðal annars að því að raunverulega sé hægt að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda og opna námsframboðið svo að sem flestir nemendur fái að kynnast fjölbreyttri tónlist, þreifa sig áfram á sínum forsendum og hljóta þannig grunn sem opnar þeim fleiri leiðir í þeim hafsjó möguleika sem tónlistariðkun býður upp á. The official education policy in Iceland is based on the idea that education is for everyone and that there should be equal access to learning for all. In relation to recent discussion on the future development of music education in Iceland, it has become clear that a more focused approach needs to be adopted to make music education accessible to and an option for all children in Iceland. At the ...