Í Kiddahvítu ljósi
Ritgerðin fjallar um liti, hvernig þeir eru notaðir í tungumálinu og hvernig þeir hafa verið settir fram af fræðimönnum og listamönnum í gegnum tíðina. Einn af hvötunum er að vita hvernig nota má liti í málverki án þess að hafa þá merkingarbæra. Þetta er ein af spurningunum sem ég hef verið að spyrj...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Bachelor Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2023
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/45383 |
Summary: | Ritgerðin fjallar um liti, hvernig þeir eru notaðir í tungumálinu og hvernig þeir hafa verið settir fram af fræðimönnum og listamönnum í gegnum tíðina. Einn af hvötunum er að vita hvernig nota má liti í málverki án þess að hafa þá merkingarbæra. Þetta er ein af spurningunum sem ég hef verið að spyrja mig frá því að ég byrjaði að gera myndlist fyrir nokkrum árum. Ég rannsaka litakerfi sem hafa verið sett fram til þess að skilja mína eigin myndlist betur. Ég hef ekki áhuga á að nota liti til að tjá eitthvað ákveðið. Í mínum huga eru tvær leiðir til að skilja liti – annars vegar að mála landslag og kynnast litunum þannig eða skoða litina sjálfa. Ég gæti farið út með tjald og trönur og málað sama fjallið aftur og aftur í mismunandi birtustigi. Ég hef valið að skoða litina sjálfa. Áður en ég vissi af var ég kominn inn í kerfi í Slippfélaginu í Reykjavík og uppgötvaði liti eins og Rutkáragráan og Kiddahvítan. Mér þótti áhugavert að þetta væri eitt þessara kerfa sem hefðu orðið til og væru í notkun. Á heildina litið eru litir flókið fyrirbæri. Ég hafði ekki áttað mig á því áður en ég fór í þennan leiðangur. Eftir að ég lagði af stað langaði mig hins vegar að skilja liti betur – til þess að geta skilið heiminn og fólkið í honum betur. Það er hvati minn fyrir myndlistinni og þessum skrifum. Mig langar að skilja og benda á það sem virðist ekki áhugavert í fyrstu en verður það kannski þegar það er dregið fram í dagsljósið. |
---|