Ímynd Íslands og sjálfsmynd Íslendinga : niðurstöður þjóðfundarins og ímyndaskýrsla forsætisráðuneytisins í ljósi söguskoðunar íslenskrar þjóðernishyggju og tungutaks sjálfstæðisbaráttunnar
Ritgerðin er lokuð Í þessari ritgerð verður varpað ljósi á hvernig söguskoðun íslenskrar þjóðernishyggju og tungutak sjálfstæðisbaráttunnar hefur haft áhrif á ímynd Íslands og sjálfsmynd Íslendinga. Farið verður í sögulegt yfirlit um þróun íslenskrar þjóðernisstefnu og gagnrýnin nálgun notuð til að...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2009
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/4511 |
Summary: | Ritgerðin er lokuð Í þessari ritgerð verður varpað ljósi á hvernig söguskoðun íslenskrar þjóðernishyggju og tungutak sjálfstæðisbaráttunnar hefur haft áhrif á ímynd Íslands og sjálfsmynd Íslendinga. Farið verður í sögulegt yfirlit um þróun íslenskrar þjóðernisstefnu og gagnrýnin nálgun notuð til að skoða hvernig sjálfsmynd Íslendinga hefur þróast allt frá 19. öld. Uppruni þjóðernisstefnu er mikilvægur í þessu tilliti og er farið sérstaklega í kenningar tveggja fræðimanna, Ernest Gellner og Anthony Smith. Skoðað er úr hvaða jarðvegi íslensk þjóðernishyggja sprottin og hver uppruni hennar er. Í því samhengi er litið aftur í söguna og hugmyndir Jóns Sigurðssonar, Jóns Jónssonar Aðils og Jónasar Hallgrímssonar um sjálfsmynd Íslendinga sérstaklega tekin fyrir. Til að sjá hvernig sjálfsmynd og ímynd Íslands hefur þróast er farið í þá sýn sem birtist í ímyndaskýrslu Forsætisráðuneytisins frá 2008 og í gögnum frá þjóðfundinum sem haldinn var í nóvember 2009. Markmið er að að skoða niðurstöður þjóðfundarins og rýnihópa sem settir voru á við gerð ímyndaskýrslu Forsætisráðuneytisins í ljósi söguskoðunar þjóðernishyggju og tungutaks sjálfstæðisbaráttunnar. |
---|