Lífvetni : eru íslenskar hverabakteríur mögulegir vetnisframleiðendur?

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Vaxandi mengun og aukning gróðurhúsalofttegunda í heiminum og sú staðreynd að ekki líður á löngu þar til kolefniseldsneytisgjafar verða áþrotum hefur athygli manna í auknum mæli beinst að endurnýtanlegum auðlindum sem hægt er að vinna or...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Dagný Björk Reynisdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/451
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Vaxandi mengun og aukning gróðurhúsalofttegunda í heiminum og sú staðreynd að ekki líður á löngu þar til kolefniseldsneytisgjafar verða áþrotum hefur athygli manna í auknum mæli beinst að endurnýtanlegum auðlindum sem hægt er að vinna orku úr. Ein þessara endurnýtanlegu auðlinda er vetni. Í dag er vetni að mestu framleitt úr vetnisríkum kolefnasamböndum með ýmsum efna og eðlisfræðilegum aðferðum. Upp ásíðkastið hafa sjónir manna beinast í auknum mæli að vetnisframleiðslu með örverufræðilegum ferlum, bæði ljóstillífandi og gerjandi. Við bruna vetnis myndast aðeins vatn í formi gufu og er bruni þess því ekki skaðlegur umhverfinu. Við niðurbrot sykra mynda gerjandi örverur rokgjarnar fitusýrur eins og edikssýru og smjörsýru auk vetnis og koltvísýrings, en einnig oxaðar afurðir eins og etanól. Hlutfall edikssýru og smjörsýru við niðurbrot sykra í gerjunarferlinu er mikilvægt. Hærra hlutfall edikssýru gefur meira magn af vetni. Hitakærar bakteríur framleiða yfirleitt hærra hlutfall edikssýru við gerjandi niðurbrot sykra samanborið við meðalhitakærar bakteríur. Einangraðir hafa verið tveir stofnar úr hverum í Grensdal við Hveragerði, Stofn 1 og Stofn 14. Þessir stofnar eru loftfirrtir, brjóta niður sykrur og mynda gas. Þeir vaxa við 45-50°C og best við sýrustig 7-8. Báðir stofnar eru líklega af flokki Clostridia, stofn 1 er skyldur ættkvíslinni Ruminococcus ogStofn 14 ættvíslinni Clostridium,næsti þekkti stofn er Sarcina maxima skyldleiki við þessa stofna er 92 og 94% sem getur gefið vísbendingu um að um nýja stofna sé að ræða. Lykilorð: Jarðhitasvæði, hitakær, loftfirrt, gerjun, lífvetni.