Almenningsrými í úthverfi Reykjavíkur. Forsendur og hönnunartillögur fyrir Selás

Reykjavík er samansafn af fjölbreyttum rýmum, hýbýlum, atvinnusvæðum, götum og gangstéttum og á milli þeirra allra teygja almenningsrýmin sig um gjörvalla borgina, þau þjóna þeim tilgangi að gestir og gangandi geti notað svæðin til tómstundar eða útivistar. Skipulag og hönnun þeirra eiga að stuðla a...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Guðný Þorgrímsdóttir 1988-
Other Authors: Landbúnaðarháskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/44805
Description
Summary:Reykjavík er samansafn af fjölbreyttum rýmum, hýbýlum, atvinnusvæðum, götum og gangstéttum og á milli þeirra allra teygja almenningsrýmin sig um gjörvalla borgina, þau þjóna þeim tilgangi að gestir og gangandi geti notað svæðin til tómstundar eða útivistar. Skipulag og hönnun þeirra eiga að stuðla að sjálfbærni, velferð og bættri lýðheilsu íbúa í Reykjavík. Sýnt hefur verið fram á að náttúrulegt umhverfi hefur jákvæð áhrif á heilsu barna og fullorðna og geta þau stuðlað að endurheimt og hugarró sem nærir einstaklinginn svo hann nái að viðhalda einbeitingu við daglegar athafnir. Seláshverfið sem tilheyrir Árbæ í Reykjavík er yfir 30 ára gamalt og því rótgróið. Hverfið má segja skarti fallegum náttúru- og útivistarsvæðum í nágrenni sínu sem er fjölfarið af bæði íbúum og gestum hverfisins. Almenningsrýmin tengjast stóru neti hins svokallaða „Græna trefils“ sem er skógræktar- og útivistarsvæði sem þverar höfuðborgarsvæðið frá Hafnarfirði til rætur Esju. Til að halda vörð um náttúruna og líffræðilegan fjölbreytileika ber Reykjavík að framfylgja sínum eigin stefnum. Tilgangur ritgerðarinnar er að greina almenningsrými í Selás, úthverfi Reykjavíkur, og athuga hvort þau séu samkvæmt stefnum og markmiðum sem Reykjavík hefur sett sér til að þjóna íbúum og búa þeim betri aðstæður í nærumhverfi sínu. Almenningsrýmin eru tíu talsins með mismunandi útfærslum eins og hefðbundin leiksvæði, andrými eða hverfisgarðar. Áhersla er lögð í greininguna að athuga hvort umhverfið styður við heilsueflandi athafnir og hvort aðstaða sé fyrir fjölbreytta aldurshópa. Niðurstöður úr greiningu sýndu fram á að fjögur svæði af tíu fengu jákvæðara mat á rýmum sínum en hin. Í þeim rýmum var aðstaða bæði fyrir fullorðna og börn að dvelja á til lengri tíma. Hin svæðin buðu upp á færri tækifæri til lengri viðveru til heilsueflingar eða til hugarróar. Svæðin hafa hins vegar möguleika á endurbótum sem geta stuðlað að heilsubætandi umhverfi fyrir fjölbreyttan aldurshóp.