Kornþurrkun í Eyjafirði

Áhugi á eflingu kornræktar hefur aukist að undanförnu, bæði meðal bænda og ráðamanna. Framleiðsla kornvara er takmörkuð á Íslandi þrátt fyrir að skilyrði til framleiðslunnar eru til staðar. Verkunaraðferð er hluti af kornræktinni en stór hluti af korni á Íslandi í dag er votverkaður. Votverkun takma...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Oddleifur Eiríksson 2001-
Other Authors: Landbúnaðarháskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/44788
Description
Summary:Áhugi á eflingu kornræktar hefur aukist að undanförnu, bæði meðal bænda og ráðamanna. Framleiðsla kornvara er takmörkuð á Íslandi þrátt fyrir að skilyrði til framleiðslunnar eru til staðar. Verkunaraðferð er hluti af kornræktinni en stór hluti af korni á Íslandi í dag er votverkaður. Votverkun takmarkar hins vegar nýtingarmöguleika kornsins en til að nýta korn til kjarnfóður- eða matvælaframleiðslu þarf að þurrka það. Kornræktendur í Eyjafirði hafa áhuga á því að koma sér upp kornþurrkstöð og hugmynd þessa verkefnis kom frá þeim. Verkefnið er tilviksrannsókn (e. case study). Markmið verkefnisins er að kanna fýsileika og hagkvæmni kornþurrkstöðvar í Eyjafirði. Kornræktendum í Eyjafirði hefur þó einnig verið boðið að þurrka korn sitt í graskögglaverksmiðju við Húsavík. Viðbót við verkefnið var því að meta flutningskostnað bæði fyrir þurrkstöð í Eyjafirði og Þingeyjarsveit og bera saman. Flutningskostnaður við að flytja korn til og frá Húsavíkur voru um 5,9 kr/kg samanborið við 2,3 kr/kg ef kornið var flutt að Syðra-Laugalandi í Eyjafirði. Þó er hagkvæmara að flytja kornið til Húsavíkur heldur en að þurrka það í 1000 tonna stöð á Syðra-Laugalandi vegna lægri þurrkkostnaðar í graskögglaverksmiðjunni. Hins vegar er 2500 tonna stöð í Eyjafirði hagkvæmari heldur en að flytja kornið til Húsavíkur en miðað við núverandi framleiðslu væri ekki hægt að fullnýta þá stöð. Rannsóknir hafa sýnt að þurrkun með heitu vatni er talsvert ódýrari heldur en þurrkun með öðrum varmaorkugjöfum. Heita vatnskostnaður var metin um 0,9 kr/kg og rafmagnskostnaður um 0,18 kr/kg.