Hver var gengisleki á Íslandi á árunum 2001 til 2008

Af lögmálinu um eitt verð leiðir að gengisbreytingar hafa töluverð áhrif á verðbólgu. Þetta samband, sem nefnt er gengisleki á verðbólgu, hefur mikla þýðingu á Íslandi þar sem þjóðin er verðbólguhrjáð og með einn minnsta sjálfstæða gjaldmiðil í heimi. Lítið virðist hafa verið ritað um þetta efni hér...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Árni Sverrir Hafsteinsson 1980-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/4473
Description
Summary:Af lögmálinu um eitt verð leiðir að gengisbreytingar hafa töluverð áhrif á verðbólgu. Þetta samband, sem nefnt er gengisleki á verðbólgu, hefur mikla þýðingu á Íslandi þar sem þjóðin er verðbólguhrjáð og með einn minnsta sjálfstæða gjaldmiðil í heimi. Lítið virðist hafa verið ritað um þetta efni hérlendis ef tekið er mið af áhrifum þessa þáttar á verðlag. Fræðigrunnur ritgerðarinnar byggir á kenningum hagfræðinnar um gengi, verðbólgu og lögmálinu um eitt verð en kenningar um gengisleka eru byggðar á því síðastnefnda. Samkvæmt lögmálinu um eitt verð ætti gengisleki að vera algjör, en það er þó ekki raunin. Í ritgerðinni er gerð mæling á áhrifum gengisbreytinga á neysluverð og til mælingarinnar er notað Vector Autoregression líkan með sex töfum. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er uppsafnaður gengisleki á verðbólgu næstu tólf mánuði eftir gengisbreytingu um 23% og endanlegur gengisleki þegar áhrifin eru að öllu komin fram um 28%. Gæði líkansins voru metin með tilgátuprófi og tókst með því að hafna þeirri núlltilgátu að gengi hafi ekki áhrif á verðbólgu