Gagnsemi CARS2-HF í skimun fyrir einhverfu hjá börnum og unglingum á Íslandi

Mikilvægt er að skima fyrir einhverfurófsröskun (ASD) hjá börnum ef grunur liggur fyrir, þar sem snemmtæk íhlutun hefur mikið um framgang röskunarinnar að segja. Childhood Autism Rating Scale 2 – High Functioning (CARS2-HF) matslistinn er notaður á Íslandi til að skima fyrir ASD hjá börnum á aldrinu...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Bryndís Lára Bjarnadóttir 2000-, Sigrún Kjartansdóttir 2000-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/44664
Description
Summary:Mikilvægt er að skima fyrir einhverfurófsröskun (ASD) hjá börnum ef grunur liggur fyrir, þar sem snemmtæk íhlutun hefur mikið um framgang röskunarinnar að segja. Childhood Autism Rating Scale 2 – High Functioning (CARS2-HF) matslistinn er notaður á Íslandi til að skima fyrir ASD hjá börnum á aldrinum 6 til 18 ára. Markmið rannsóknarinnar var að athuga hversu vel CARS2-HF nær raunverulega að spá fyrir um endanlega ASD greiningu í klínísku úrtaki íslenskra barna. Þá var sérstök áhersla lögð á að athuga kynjamun eftir ólíkum skilyrðum. Úrtakið samanstóð af börnum sem hafði verið vísað í greiningarferli hjá Þroska- og hegðunarstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, á árunum 2017 til 2022. Alls voru 438 börn sem uppfylltu skilmerki rannsóknarinnar, þar af 290 strákar og 148 stelpur. Heildarskor barna á CARS2-HF skimunarlistanum voru borin saman við skor þeirra á matslistunum Autism Spectrum Screening Questionnaire (ASSQ) og Social Communication Questionnaire (SCQ). Niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna marktæk tengsl milli viðmiðs á CARS2-HF og endanlegrar ASD greiningar. Marktækur aldursmunur var á greiningaraldri kynjanna, þar sem stelpur greindust að meðaltali ári seinna. Lág til miðlungs marktæk fylgni var á milli heildarskors á CARS2-HF og heildarskora á ASSQ og SCQ, hjá strákum og stelpum. Hlutfallslega fleiri stelpur en strákar voru metnar undir viðmiðum á CARS2-HF í hópi þeirra sem hlutu ASD greiningu. Flest barnanna greindust með ódæmigerða einhverfu og þar á eftir Aspergersheilkenni. Efnisorð: Childhood Autism Rating Scale (CARS2-HF), einhverfurófsröskun (ASD), börn, kynjamunur. Screening for autism spectrum disorder (ASD) in children is important if suspected, given the importance of early intervention for the progression of the disorder. The Childhood Autism Rating Scale 2 – High Functioning (CARS2-HF) screening questionnaire is used in Iceland to assess for ASD in children aged 6 to 18 years. The aim of the study was to check how well the CARS2-HF actually predicts the final ASD diagnosis in a ...