Eru áherslur mótvægisaðgerða í samræmi við vænt umhverfisáhrif?

Mat á umhverfisáhrifum framkvæmda var lögleitt á Íslandi árið 1993. Um er að ræða kerfisbundið ferli sem felst í að leggja mat á vænt áhrif framkvæmda á umhverfið með það að markmiði að draga úr neikvæðum áhrifum þeirra eins og kostur er. Með mótvægisaðgerðum er leitast við að koma í veg fyrir, drag...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Frímann Kristjánsdóttir 1992-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/44585
Description
Summary:Mat á umhverfisáhrifum framkvæmda var lögleitt á Íslandi árið 1993. Um er að ræða kerfisbundið ferli sem felst í að leggja mat á vænt áhrif framkvæmda á umhverfið með það að markmiði að draga úr neikvæðum áhrifum þeirra eins og kostur er. Með mótvægisaðgerðum er leitast við að koma í veg fyrir, draga úr eða bæta fyrir neikvæð áhrif framkvæmdanna. Fyrri rannsóknir á mótvægisaðgerðum benda til þess að bæta megi notkun mótvægisaðgerða að ýmsu leyti. Í þessari rannsókn var markmiðið að skoða hvort áherslur mótvægisaðgerða séu í samræmi við vænt umhverfisáhrif framkvæmdanna. Teknar voru fyrir 12 af 29 raflínu- og vegaframkvæmdum sem fóru í umhverfismat á tímabilinu 2006-2022 og þær greindar. Greindar voru þær mótvægisaðgerðir sem voru lagðar til í umhverfismatsskýrslum framkvæmdaraðila, álitum Skipulagsstofnunar og framkvæmdaleyfum sveitarstjórna. Rannsóknin byggir á hugmyndum um forgangsröðun mótvægisaðgerða (e. mitigation hierarchy). Samkvæmt þeim eru þær mótvægisaðgerðir ákjósanlegastar sem koma í veg fyrir neikvæð áhrif framkvæmda, þar á eftir koma þær sem draga úr áhrifunum, því næst eru aðgerðir sem miða að því að lagfæra neikvæðu áhrifin sem framkvæmdin olli. Bætur eru þær aðgerðir sem taldar eru síst ákjósanlegar. Rannsóknin leiddi í ljós að áherslur mótvægisaðgerða eru að ýmsu leyti í ósamræmi við vægi væntra áhrifa. Ekki er skýrt samhengi milli vægis væntra umhverfisáhrifa og gerðar og fjölda þeirra mótvægisaðgerða sem lagðar eru til í umhverfismatinu. Þannig er oft lítill munur á þeim mótvægisaðgerðum sem lagðar eru til þegar áhrif framkvæmdar eru talin verða lítil eða engin og þegar þau eru talin verða mjög neikvæð. Sömuleiðis taldi Skipulagsstofnun í 14 skipti vænt áhrif neikvæðari en niðurstaða umhverfismatsskýrslu framkvæmdaraðila sagði til um, án þess að lagðar væru til frekari mótvægisaðgerðir eða skilyrði, hvorki í áliti Skipulagsstofnunar né í framkvæmdaleyfi sveitarfélags. Legislation on Environmental Impact Assessment (EIA) was established in Iceland in 1993. EIA is a systematic process in ...