Summary: | Byggðarrannsóknir gefa til kynna ólíka þætti sem hafa áhrif á búsetuval fólks og eru samgöngur stór hluti af því. Íbúar minni byggðalaga finna margir hverjir fyrir óþægindum þegar þeir ferðast til og frá heimilum sínum ef ástand vega er slæmt. Aðgengi að grunnþjónustu er nauðsynlegur hluti af þróun samfélagsins og mikilvægt að stuðla að bættu aðgengi. Markmið þessarar rannsóknar var að greina álit íbúa í Fljótum í Skagafirði og einstaklinga sem þar starfa á ástandi Siglufjarðarvegar. Áhersla var á að leitast eftir viðhorfum viðmælenda til ferðalaga um Siglufjarðarveg og hvernig hann væri að hafa áhrif á ferðahegðun. Ljóst er að stór hluti fólks í dreifbýli býr við ófullnægjandi aðstæður þegar kemur að samgöngum. Þetta er viðtalsrannsókn við íbúa í Fljótum og fólk sem ferðast daglega um Siglufjarðarveg vegna vinnu í Fljótum. Niðurstöður úr rannsókninni sýna samhljóm í viðhorfum íbúa og starfandi í Fljótum gagnvart Siglufjarðarvegi en öll eiga þau sameiginlegt að telja hann vera hættulegan í akstri og að mikið óöryggi og kvíði fylgi því að ferðast um hann, einkum að vetri og í mikilli rigningu. Einnig telja viðmælendur að bætt aðgengi að grunnþjónustu og afþreyingu vera mikilvægan þátt í daglegu lífi. Regional studies indicate the different factors that influence people's choice of residence. Transportation is a big part of that. Many residents of small and remote settlements feel unsecure when travelling to and from their homes on dangerous roads. Access to basic services is a necessary part of society's development and it is important to promote improved access for all people. The aim of this thesis was to get the opinion of the residents of Fljótin, a rural community located in the municipality of Skagafjörður, and those who work there on the condition of the road that leads to Siglufjörður, the nearest town. The focus of the reasearch was on their views on travelling the road, named Siglufjarðarvegur, and understand what factors are influencing their travel behavior. This is a qualitative study, based on ...
|