„Við eigum einnig að njóta góðs af ferðaþjónustu á Íslandi“: Bætt aðgengismál fatlaðra innan ferðaþjónustunnar

Ferðaþjónusta er mikilvæg íslensku efnahagslífi og hafa margar tegundir ferðamennsku komið fram síðustu ár. Aðgengileg ferðaþjónusta er hugtak sem hefur verið áberandi í umræðunni síðustu ár. Aðgengileg ferðaþjónusta snýr að því að allir eiga að hafa kost á því að ferðast á einfaldan hátt, þá sérsta...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Kristín Ísabella Karelsdóttir 1993-, Heiðrún Inga Þrastardóttir 1993-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/44546
Description
Summary:Ferðaþjónusta er mikilvæg íslensku efnahagslífi og hafa margar tegundir ferðamennsku komið fram síðustu ár. Aðgengileg ferðaþjónusta er hugtak sem hefur verið áberandi í umræðunni síðustu ár. Aðgengileg ferðaþjónusta snýr að því að allir eiga að hafa kost á því að ferðast á einfaldan hátt, þá sérstaklega einstaklingar sem lifa með fötlun af einhverju tagi. Það er mikilvægt að allir hafi sömu réttindi í lífinu og á það einnig við þegar kemur að ferðaþjónustu. Mikil vitundarvakning hefur átt sér stað þegar kemur að einstaklingum með fötlun og ferðalögum og hafa verið sett verkefni á laggirnar sem snúa að málefnum fatlaðra og aðgengi þeirra í ferðaþjónustu. Rannsókn þessi skoðar aðgengi fatlaðra á vinsælum stöðum innan Gullna hringsins, nánar tiltekið við Gullfoss og Geysi. Kannað var aðgengi á framangreindum stöðum með aðstoð einstaklings sem notar hjólastól í daglegu lífi ásamt gátlista til viðmiðunar. Niðurstöður rannsóknarinnar byggjast á vettvangsferðinni ásamt viðtölum við einstaklinga sem búa við fötlun um upplifun þeirra af aðgengismálum á ferðalögum hér á landi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að einstaklingar upplifa ferðalög hér á landi heilt yfir á jákvæðan máta. Þrátt fyrir að fyrirtæki innan ferðaþjónustunnar séu á réttri leið eiga þau enn langt í land til að fullt jafnræði náist hvað viðkemur aðgengismálum fatlaðra á ferðamannastöðum.