Notagildi fjarkönnunar við hreindýravöktun

Vöktun íslenska hreindýrastofnsins er mikilvæg til þess að viðhalda sjálfbærum stofni og vernda íslensk vistkerfi. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna notagildi mismunandi fjarkönnunaraðferða við vöktun íslenska hreindýrastofnsins. Náttúrustofa Austurlands hefur vaktað íslenska hreindýrastofnin...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Karen Marinósdóttir 2001-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Bachelor Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/44520
Description
Summary:Vöktun íslenska hreindýrastofnsins er mikilvæg til þess að viðhalda sjálfbærum stofni og vernda íslensk vistkerfi. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna notagildi mismunandi fjarkönnunaraðferða við vöktun íslenska hreindýrastofnsins. Náttúrustofa Austurlands hefur vaktað íslenska hreindýrastofninn frá árinu 2000 með mismunandi aðferðum. Stærsti hluti vöktunarinnar felst í flugtalningum og gögnum frá GPS- merktum hreinkúm. Einn mikilvægur þáttur hreindýravöktunarinnar er að fá heildartalningar af stofninum. Í rannsókninni er stuðst við GPS-gögn frá Náttúrustofu Austurlands, loftmyndir úr gagnagrunni Loftmynda og MAXAR gervitunglamyndir. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að þörf er á mismunandi aðferðum við vöktun hreindýrastofnsins til þess að minnka óvissu og fá sem nákvæmastar niðurstöður. Það er ekki raunhæfur valkostur enn sem komið er að vakta hreindýrastofninn með loft- og gervitunglamyndum. Hjarðir sáust í tveimur tilfellum á RGB-loftmyndum sem teknar eru af Loftmyndum ehf., en það dugir ekki til heildartalninga. Hins vegar, gefur vinna með grunnmyndir frá Loftmyndum ehf. góða raun því þar greinast hreyfingar hreindýranna á milli mynda. Gervitunglamyndir henta vel til þess að vakta gróður, sem getur endurspeglað beit hreindýra en hafa almennt ekki nógu háa rúmupplausn til að greina hreindýr. Flugtalningar uppfylla skilyrði við frjósemis-, burðar- og fengitímatalningar með hárri rúmupplausn til þess að skera úr um smáatriði. Á næstu árum er búist við mikilli þróun í fjarkönnunartækni og betra aðgengi að henni. Því geta loft- og gervitunglamyndir haft mikið notagildi í vöktun íslenska hreindýrastofnsins í nálægri framtíð. Monitoring of the Icelandic reindeer population is important in order to maintain a sustainable population and protect the fragile Icelandic ecosystems. The goal of this project is to investigate the possibilities of different remote sensing methods for monitoring the Icelandic reindeer population. The East Iceland Nature Research Centre (EINRC) monitors the population, using ...