Áhrif mismunandi ljóslotu á kynþroska bleikju (Salvelinus alpinus, L.)

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Ýmsir umhverfisþættir, s.s. ljóslota, hiti, fæðuframboð o.fl hafa áhrif á kynþro laxfiska. Sýnt hefur verið fram á að veigamesti þátturinn í þessu ferli er ljóslotan en hitastig er einnig stór áhrifaþáttur. Kynþroska ýmissa laxfiska í el...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Arnþór Gústavsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/445
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Ýmsir umhverfisþættir, s.s. ljóslota, hiti, fæðuframboð o.fl hafa áhrif á kynþro laxfiska. Sýnt hefur verið fram á að veigamesti þátturinn í þessu ferli er ljóslotan en hitastig er einnig stór áhrifaþáttur. Kynþroska ýmissa laxfiska í eldi er stjórnað með ljóslotu og hitastigi. Miklir hagsmunir eru fólgnir í því að geta stjórnað hrygningartíma og þar með framleitt hrogn oftar en einu sinni á ári. Ííslenskum bleikjueldisstöðvum verður ríflega helmingur heimsframleiðslu af eldisbleikju til. Það er mikilvægt fyrir íslenskan bleikjuiðnað að halda sterkri stöðu sinni ámarkaðnum. Til þess þarf að ná fram aukinni hagkvæmni í eldinu svo það geti vaxið enn frekar og dafnað. Framleiðsla á hrognum á mismunandi árstímum gæti verið einn liður í þá átt að gera íslenskt bleikjueldi hagkvæmara. Tilraunin hófst í júlí 2002 þegar bleikju á þriðja aldursári (2+) var komið fyrir í eldisrými með mismunandi ljóslotu og hitastigi. Viðmiðunarhópur (meðferð 1) var alinn á náttúrulegri ljóslotu og því sem næst náttúrulegu hitastigi. Fiskur í þeirri meðferð varð kynþroska að hausti líkt og gerist út í náttúrunni. Í meðferð 2 var ráðgert að seinka kynþroska um 6 mánuði. Þessi meðferð fólst í því að setja fisk á stutta ljóslotu síðsumars 6L:18M (6 klst.ljós:18 klst. myrkur) og 5°C, á langa ljóslotu 22L:2M og 10°C frá október og fram í mars og svo aftur á stutta ljóslotu 6L:18M og 5°C eftir það. Stór hluti fisksins varð kynþroska strax sama haustið og tilraunin hófst. Í maí þegar tilrauninni lauk sýndi fiskur í þessari meðferð merki um að hann væri að verða kynþroska aftur. Í meðferð 3 var kynþroska seinkað um 3 mánuði. Fiskur í þessari meðferð var settur á langa ljóslotu 22L:2M og 10°C og henni haldið fram í nóvember en þá var ljóslota stytt í 6L:18M og hitastig lækkað í 5°C. Meirihluti fiskanna varð kynþroska þegar ljóslota var stytt. Meðferð 4 fólst í því að halda fiski á stöðugri langri ljóslotu 22L:2M og 10°C. Vöxtur í þessari meðferð var mikill og tíðni kynþroska fiska ...