Líkamsástand skógarþrasta frá vetri fram á vor

Á veturna getur fæðuframboð verið mjög breytilegt. Ófyrirsjáanleikinn leiðir til þess að fuglar safna fituforða til þess að geta tekist á við mögulegan fæðuskort. Fituforðinn getur gefið vísbendingar um lífslíkur fugla og út frá þeim er hægt að áætla aðra þætti eins og áhrif á stofngerð. Hluti af st...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristrún Thanyathon Rodpitak 2000-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/44434
Description
Summary:Á veturna getur fæðuframboð verið mjög breytilegt. Ófyrirsjáanleikinn leiðir til þess að fuglar safna fituforða til þess að geta tekist á við mögulegan fæðuskort. Fituforðinn getur gefið vísbendingar um lífslíkur fugla og út frá þeim er hægt að áætla aðra þætti eins og áhrif á stofngerð. Hluti af stofni skógarþrasta Turdus iliacus coburni hefur vetursetu á Íslandi en stærsti hluti stofnsins flýgur til V-Evrópu yfir vetrartímann. Óvíst er hvort fitusöfnun vetursetuþrastanna sé breytileg eftir því sem líður á veturinn og hvaða þættir hafa áhrif. Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka hvort fituforði staðþrastanna breytist með tíma og hvort hann sé mismunandi eftir aldurshópum. Einnig var kannað hvort fituforði vetursetuþrasta að vori sé frábrugðinn farfuglunum við komu til landsins. Veiddir voru 85 skógarþrestir frá 14. febrúar - 1. maí 2023 og var líkamsástandsstuðull (BCI), sem byggir á þyngd og stærð fuglanna notaður í útreikninga. Niðurstöðurnar sýna að breytingar verða á BCI skógarþrasta yfir veturinn. BCI nær hámarki um miðjan vetur og fer svo minnkandi þegar líða fer að vori. Af þeim þáttum sem voru rannsakaðir virðist daglengd hafa mestu áhrifin á BCI en eftir því sem dagarnir lengjast minnkar BCI. Ekki er marktækur munur á BCI á milli aldurshópa sem bendir til þess að lífslíkur fullorðinna einstaklinga og ungfugla séu svipaðar eftir miðjan vetur. Ekki var munur á BCI stað- og farþrasta að vori. Því er óljóst hvort hagstæðara sé að verja vetrinum á Íslandi eða fljúga suður ef líkamsástand er þáttur sem skiptir máli við að ná góðum óðulum að vori. The unpredictability of food resources during winter is commonly met by accumulation of energy reserves (usually fat) in birds. Reserves provide clues about the life expectancy of individuals and can therefore indicate age- and sex related survival differences. The Icelandic Redwing Turdus iliacus coburni is mainly migratory but winters in small numbers in Iceland. The dynamics of energy accumulation in wintering redwings, as well as the factors involved, are ...