Samanburður á líkamsástandsstuðli svartþrasta (Turdus merula) og skógarþrasta (Turdus iliacus)

Svartþrestir (Turdus merula) eru staðfuglar á Íslandi, þar sem aðstæður að vetri geta verið krefjandi. Samkeppni meðal tegunda er mest á veturna og eru helstu keppinautar skógarþrestir (Turdus iliacus) og starar (Sturnus vulgaris). Til þess að lifa af erfiðan vetur þurfa þrestirnir að bæta á sig fit...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Írena Pálsdóttir 1998-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/44433
Description
Summary:Svartþrestir (Turdus merula) eru staðfuglar á Íslandi, þar sem aðstæður að vetri geta verið krefjandi. Samkeppni meðal tegunda er mest á veturna og eru helstu keppinautar skógarþrestir (Turdus iliacus) og starar (Sturnus vulgaris). Til þess að lifa af erfiðan vetur þurfa þrestirnir að bæta á sig fituforða til að hafa nægilega orku til að lifa af langar vetrarnætur og til að mæta ófyrirsjáanleika við fæðuöflun. Markmið þessarar ritgerðar er að leitast eftir svari hvort munur sé á líkamsástandsstuðli meðal tveggja náskyldra spörfuglategunda þ.e. svartþröstum og skógarþröstum. Gagnasöfnunin fór fram að mestu leiti í Fossvogskirkjugarði frá 14.febrúar til 1.maí 2023. Til að fanga fuglanna var notast við pedalagildrur, smellubúr og slæðunet. Á þessu tímabili voru 15 svartþrestir og 85 skógarþrestir veiddir. Auk þess var fyrirliggjandi gögnum safnað saman til að fá samanburð yfir lengra tímabil. Þrestirnir voru vigtaðir og aldursgreindir, einnig voru vængur, ristarleggur og stél lengdarmæld. Niðurstöðurnar greina frá því að svartþrestir eru með hærri líkamsástandsstuðul (orkuforða) á veturna en skógarþrestir en þeir eru fljótari að missa forðann þegar líður að sumri. Blackbirds (Turdus merula) are resident birds that can be found in urban areas in Iceland where winters can be harsh. Competition for food among birds occurs throughout the year but is most intense during the winter when they compete with, for example, redwings (Turdus ilica). In order to survive the difficult winter, blackbirds need to build up their fat reserves to have enough energy for thermoregulation. The aim of this thesis is to investigate whether there is a difference in fat reserves between closely related bird species, i.e. blackbirds and redwings, during the winter in Iceland. The data collection was mostly conducted in Fossvogur Cemetery from February 14th to May 1st, 2023. Bird traps such as mist nets, clap traps, and trap door were used to catch the birds. During this period, 15 blackbirds and 85 redwings were caught and additional data ...